Fótbolti

Óbólusettur leikmaður Bayern greindist með veiruna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Joshua Kimmich greindist í dag með kórónuveiruna, en leikmaðurinn er óbólusettur.
Joshua Kimmich greindist í dag með kórónuveiruna, en leikmaðurinn er óbólusettur. Roland Krivec/DeFodi Images via Getty Images

Joshua Kimmich, miðjumaður Þýskalandsmeistara Bayern München og þýska landsliðsins, greindist í dag með kórónuveiruna, en leikmaðurinn er óbólusettur.

Frá þessu er greint á opinberri heimasíðu Bayern München, en fyrr á árinu olli Kimmich usla í Þýskalandi þegar hann viðraði skoðanir sínar um bólusetningu og sagðist hafa persónulegar áhyggjur af bóluefninu gegn kórónuveirunni.

Nú eru alls fimm leikmenn liðsins í sóttkví vegna veirunnar. Leikmennirnir fimm eru þeir Joshua Kimmich, Ser­ge Gna­bry, Eric Max­im Choupo-Mot­ing, Jamal Musiala og Michael Cuis­ance. Fyrr í dag greindi félagið frá því að Chupo-Moting hefði greinst með veiruna og í seinustu viku greindist liðsfélagi þeirra, Niklas Süle, einnig með veiruna.

Samkvæmt heimildum þýska miðilsins Bild mun Bayern München lækka laun leikmannana á meðan þeir eru í sóttkví, en félagið sjálft hefur ekki tjáð sig um þær sögusagnir.

Þrátt fyrir að Bayern sitji á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar og sé með fullt hús stiga í Meistaradeildinni hefur fjarvera leikmanna vegna kórónuveirunnar haft áhrif á úrslit félagsins. Bayern tapaði óvænt gegn Augsburg síðastliðinn föstudag, en eftir tíu daga mætir liðið Borussia Dortmund í toppslag þýsku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×