N4 slaufar kosningaumfjöllun eftir að Kattaframboð neitar að borga fyrir þátttöku Jakob Bjarnar skrifar 11. maí 2022 17:14 Snorri Ásmundsson telur það algert siðleysi og skrumskælingu á lýðræðinu að rukka frambjóðendur fyrir að koma í umræðuþátt um kosningarnar. vísir/vilhelm/skjáskot Til stóð að akureyrska sjónvarpsstöðin N4 yrði með sérstakan kosningaþátt eða þætti en babb kom í bátinn þegar Snorri Ásmundsson og Kattaframboðið gerðu athugasemd við að borga þyrfti fyrir þátttöku. Nú hefur alfarið verið fallið frá þeim fyrirætlunum stöðvarinnar að vera með kosningaumfjöllunina.
Til stóð að framboðin kæmu í sjónvarpsal og sætu fyrir svörum í pallborði. En þegar í ljós kom að fjölmiðillinn ætlaði sér að rukka hvert og eitt framboð um 150 þúsund krónur fyrir að fá að vera með varð ýmsum frambjóðendum ekki um sel. Þessi upphæð var lækkuð í hundrað þúsund krónur eftir að Snorri Ásmundsson og þau í Kattaframboðið gerðu athugasemd við þessa fyrirætlun fjölmiðilsins. Hverrar krónu virði „Mér blöskraði og hafði samband við hana,“ segir Snorri í samtali við Vísi. Hann er þar að vísa til framkvæmdastjórans Maríu Bjarkar Ingvadóttur. Snorri tjáði henni í netspjalli að sér þætti þetta siðlaust og fyrir neðan allar hellur. Fyrstu viðbrögð voru þau að benda þeim í Kattaframboðinu á að hundrað þúsund krónur væru nú ekki miklir peningar. Allt kosti nú í heimi hér og að N4 njóti ekki styrkja. Og miðað við að enn hafi þrjátíu prósenta bæjarbúa ekki gert upp hug sinn þá hljóti Kattaframboðið að meta þetta sem hverrar krónu virði, að ná til óákveðinna kjósenda. Þetta hljóti að teljast sanngjarnt. „Það er galin tækifærismennska að misnota lýðræðið á þennan hátt ykkur í hagnaðarskyni,“ sagði Snorri í fyrirspurn til N4 og bætti því við að þessu yrði ekki tekið þegjandi og hljóðalaust. Önnur framboð beðið um umfjöllun Svörin sem Snorri fékk frá N4 voru á þá leið að þetta væri ekki gert í hagnaðarskyni … „eða þaðan af síður í tækifærismennsku heldur stendur það framboðum til boða. N4 er ekki rekin á styrkjum hvorki frá ríki eða bæ og vinna við þáttinn kostar sitt.“ Frekari svör bárust svo en þá var Snorra tjáð að við nánari eftirgrennslan hjá Fjölmiðlanefnd hafi komið á daginn að þetta væri á gráu svæði, slíkur þáttur ef hann er styrktur af framboðunum. Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri var til umfjöllunar í landsbyggðakálfi Fréttablaðsins 10. maí 2019 og þá kom fram að mikill uppgangur væri á stöðinni, 350 þættir af íslensku efni frumsýndir á síðasta ári, 200 klukkustundir og N4 væri eina sjónvarpsstöð landsins utan höfuðborgarsvæðisins.skjáskot „Og þar sem N4 vill ekki gambla með lögin eða orðspor sitt, þá höfum við ákveðið að sleppa allri umfjöllun um kosningar. En svo því sé til haga haldið þá hafa okkur borist fyrirspurnir frá framboðum á Akureyri og beiðnir um umfjallanir enda lítið farið fyrir því á ríkisstyrktum miðlum. Lítil einkarekin sjónvarpsstöð rekin án allra styrkja í dag hefur ekki bolmagn til að framleiða þætti án þess að hafa til þess fjármagn,“ sagði í svari N4 til Snorra og félaga. Telur þetta form fjölmiðlunar siðlaust Snorri segir að önnur framboð á Akureyri hugsi sér nú þegjandi þörfina fyrir að hafa komið í veg fyrir þáttinn með þessum hætti. En hann segir að svo verði þá bara að vera. Og segi þá sögu að Kattaframboðið þoli enga spillingu og láti til sín taka. Snorri segist ekki óttast það hætishót að vera nú líklegast kominn í ónáð hjá stærsta fjölmiðli bæjarfélagsins? „Nei,“ segir Snorri með áherslu. „Mér hefur alltaf fundist þetta nett spilltur fjölmiðill sem fjallar ekki um neitt nema borgað sé fyrir það. Þetta er ekki í lagi, fáránleg vinnubrögð og út úr öllu korti. Fólk er að kaupa sér auglýsingu í formi umfjöllunar og þannig er verið að blekkja fólk. Þetta hefur fjölmiðillinn stundað í fjölmörg ár, þetta er óeðlilegt og afbökun á lýðræðinu,“ segir oddviti Kattaframboðsins.
Fjölmiðlar Fjölmiðlalög Akureyri Sveitarstjórnarkosningar 2022 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Sjá meira