Hannes ráðleggur Sölva að gleyma þessu með Gróusögurnar Jakob Bjarnar skrifar 3. maí 2021 17:37 Hannes segist þekkja það harla vel að lenda í hakkavél slúðursagna og miðlar til Sölva af reynslu sinni: Gleymdu þessu. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er meðal fjölmargra sem lýsir yfir stuðningi við Sölva Tryggvason fjölmiðlamann en bendir honum á að láta rætnar kjaftasögurnar sem vind um eyru þjóta.
Þetta gerir Hannes í athugasemd við færslu Sölva sem hefur hefur vakið verulega athygli en Vísir greindi frá efni hennar nú fyrir stundu. Sölvi sagðist vera sem lamaður eftir að blaðamenn tóku að hringja í hann og bera undir hann sögu sem um hann gekk; þess efnis að hann hafi verið handtekinn af lögreglu vegna ofbeldis í garð vændiskonu. „Þú átt alla mína samúð, en þú skalt ekki taka þetta of nærri þér. Þetta breytir engu. Slúður er valdabarátta hinna valdalausu, tilraun þeirra til að höggva í þá, sem eru uppi á sviðinu hverju sinni,“ segir Hannes en snýr sér þá að sinni eigin reynslu í þessum efnum. „Sjálfur hef ég lent í slíku slúðri, og það hefur ekkert gert mér. Þegar við áttum nokkrir í höggi við valdamikinn auðjöfur (ekki Jón Ásgeir), setti sá af stað fáránlegar og tilhæfulausar slúðursögur um mig, sem ég vildi ekki gefa líf með því að endurtaka þær.“ Hannes heldur áfram að miðla Sölva af þessari reynslu sinni og segir að slúðursögunum um sig hafi verið fylgt eftir: „Bubbi Morthens var hins vegar látinn segja þær tvisvar í röð á Þorláksmessutónleikum sínum, og Sigursteinn Másson gerði mér fyrirsát með því að spyrja mig um þær í beinni útsendingu án þess að segja mér frá því fyrirfram. Ég fékk líka nafnlaus bréf, sem voru auðvitað frá þessum aðila. „Þú veist, hvað þú gerðir í … . Ég veit, hvað þú gerðir í … . Viltu, að þjóðin fái að vita það?“ Hannes segist ekkert hafa gert með þetta: „Ég yppti aðeins öxlum. Þú skalt gleyma þessu.“ Fjölmargir hafa nú þegar sent Sölva uppörvandi kveðjur.
Samfélagsmiðlar Fjölmiðlar Mál Sölva Tryggvasonar Mest lesið „Ég verð að komast til Japan“ Lífið „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Lífið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Sonurinn skírður Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Bítið í beinni Lífið Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Gylfi og Alexandra eiga von á barni Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni „Ég verð að komast til Japan“ „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Sonurinn skírður Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Sjá meira