Umdæmislæknir sóttvarna hefði viljað hafa skipið nálægt höfn Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 23. október 2020 23:33 22 af 25 skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni reyndust smitaðir af Covid-19. Vísir/Hafþór
Umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum segir að hún hefði viljað hafa frystiskipið Júlíus Geirmundsson nálægt höfn eftir að skipverjar tilkynntu henni um grun um kórónuveirusmit um borð. Hópsmit kom upp í skipinu og smituðust 22 af 25 skipverjum um borð. „Þetta er allt hið leiðinlegasta mál. Þegar maður horfir aftur í tímann þá hugsar maður kannski að það væri hægt að hafa gert þetta öðruvísi og það væri hugsanlega hægt að hafa greint þetta fyrr þannig að það væri þá hægt að koma í veg fyrir smit,“ sagði Súsanna Björg Ástvaldsdóttir umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum í Reykjavík síðdegis í dag. Á heimasíðu Verkalýðsfélags Vestfirðinga segir að Hraðfrystihúsið Gunnvör (HG) hafi hudsað tilmæli um viðbrögð frá sóttvarnayfirvöldum. Framkvæmdastjóri HG og skipstjóri skipsins viðurkenndu síðar að eftir á að hyggja hefði átt að fara fyrr í land. Þeir hafi þó verið í samandi við sóttvarnalækni. Ekki hægt að staðfesta að um kvef sé að ræða með samtali „Ef það er grunur um smitsjúkdóm þá ber að fara eftir einhverjum ákveðnum verkferlum. Þeir hringdu í mig og báru þetta undir mig og mín skilaboð hafa alltaf verið skýr, frá upphafi faraldursins, að ef fólk er með einkenni þá þarf það að koma í sýnatöku og það að eiga samtal við mig um að staðfesta að þetta sé kvef er bara ekki til. Fólk verður að mæta í sýnatöku. Það er enginn munur á covid og kvefi,“ segir Súsanna. Skipverjarnir sóttu í dag fund með Verkvest og greindu þeir frá því að margir þeirra hafi verið alvarlega veikir í þriggja vikna túr á miðunum. Þeir hafi verið með mikinn hita, öndunarörðugleika auk fleiri þekktra einkenna Covid-19. Ástandið um borð hafi verið mjög alvarlegt en þrátt fyrir að hafi hvorki skipstjóri né útgerð séð ástöðu til að tilkynna um veikindin til sóttvarnayfirvalda eða Landhelgisgæslu né að halda skipi til hafnar til að framkvæma sýnatöku. „Mikilvægt að hringja strax og tilkynna veikindi“ Skipverjar segja jafnframt að Súsanna hafi lýst því yfir að hún vildi fá skipverja í sýnatöku á þriðja degi veiðiferðar. „Ég hugsaði það þannig að ég myndi ekki endilega vilja hafa þá bundna við höfn á meðan við vorum að komast að niðurstöðu en vera nálægt höfninni. Ef það skyldi og verða einhver veikindi um borð þá gætum við gripið inn í og náð í veika menn,“ segir Súsanna. „Það er mjög mikilvægt að hringja strax og tilkynna veikindi og ef mig minnir rétt þá eru verkferlar um að láta Landhelgisgæsluna vita um veikindi um borð. Sérstaklega þegar veikindi verða að fleiri en tveimur sjómönnum þá fer mann að gruna smitsjúkdóma. Þá er mjög mikilvægt að gripið sé strax inn í svo þessi smitsjúkdómur dreifi sér ekki víðar [um borð].“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Sjávarútvegur Ísafjarðarbær Hópsmit á Júlíusi Geirmundssyni Tengdar fréttir Bannað að segja fjölmiðlum frá veikindum sínum um borð Skipverjar á frystiskipinu Júlíusi Geirmundssyni segjast margir hverja hafa verið alvarlega veikir í þriggja vikna túr á miðunum. Þeir hafi verið með mikinn hita, öndunarörðugleika auk fleiri þekktra einkenna Covid-19 sjúkdómsins. 23. október 2020 16:38 Segja að rétt hefði verið að snúa Júlíusi Geirmundssyni til hafnar fyrr Kalla hefði átt Júlíus Geirmundsson til hafnar fyrr og segja alla áhöfn skipsins í skimun fyrir Covid-19, miðað við þá vitneskju sem nú liggur fyrir. Þetta kemur fram í yfirlýsing á vef Hraðfrystihússins Gunnvarar, sem gerir út frystitogarann. 21. október 2020 23:00 „Þetta er ljóta helvítis yfirklórið og drullumokstur“ Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum, segir tilmæli sín mjög einföld þegar komi að einkennum vegna Covid. Skipti þá engu hvort menn séu á sjó eða í landi. Menn eigi að koma í sýnatöku. 22. október 2020 12:39 Allir skipverjarnir nema einn yfirgefa togarann Skipverjarnir 25 á Júlíusi Geirmundssyni hafa fengið leyfi til að yfirgefa skipið og munu allir nema einn gera það í dag. 21. október 2020 15:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Erlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Erlent Fleiri fréttir Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Hæstiréttur bannar síþrotamanni að stunda rekstur Flestir öryggishnappar vegna heimilisofbeldis Fá 82 þúsund fyrir að vinna frá átta til 23 Mikilvægt að upplýsa málið svo aðrir sjái sér ekki leik á borði Helga hellir sér í forsetaslaginn Pallborðið: Eiga læknar að aðstoða fólk við að deyja? Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins Sjá meira
Bannað að segja fjölmiðlum frá veikindum sínum um borð Skipverjar á frystiskipinu Júlíusi Geirmundssyni segjast margir hverja hafa verið alvarlega veikir í þriggja vikna túr á miðunum. Þeir hafi verið með mikinn hita, öndunarörðugleika auk fleiri þekktra einkenna Covid-19 sjúkdómsins. 23. október 2020 16:38
Segja að rétt hefði verið að snúa Júlíusi Geirmundssyni til hafnar fyrr Kalla hefði átt Júlíus Geirmundsson til hafnar fyrr og segja alla áhöfn skipsins í skimun fyrir Covid-19, miðað við þá vitneskju sem nú liggur fyrir. Þetta kemur fram í yfirlýsing á vef Hraðfrystihússins Gunnvarar, sem gerir út frystitogarann. 21. október 2020 23:00
„Þetta er ljóta helvítis yfirklórið og drullumokstur“ Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum, segir tilmæli sín mjög einföld þegar komi að einkennum vegna Covid. Skipti þá engu hvort menn séu á sjó eða í landi. Menn eigi að koma í sýnatöku. 22. október 2020 12:39
Allir skipverjarnir nema einn yfirgefa togarann Skipverjarnir 25 á Júlíusi Geirmundssyni hafa fengið leyfi til að yfirgefa skipið og munu allir nema einn gera það í dag. 21. október 2020 15:33