Hitabeltisdýr í Hveragerði gera vel við gesti

Mikil stemning var á bjórhátíð Ölverks árið 2019 og gestir …
Mikil stemning var á bjórhátíð Ölverks árið 2019 og gestir tóku upp á ýmsu.

„Miðasala hefur farið fram úr björtustu vonum. Það voru margir sem komu 2019 sem voru ákveðnir í að missa ekki af þessari hátíð, ekki síst þar sem við gátum ekki haldið hátíðina í fyrra út af Covid,“ segir Laufey Sif Lárusdóttir, einn eigenda veitingastaðarins Ölverks í Hveragerði.

Fjölmörg brugghús kynna framleiðslu sína á bjórhátíð Ölverks um næstu …
Fjölmörg brugghús kynna framleiðslu sína á bjórhátíð Ölverks um næstu helgi.

Margir þekkja Ölverk sem í rúm fjögur ár hefur boðið upp á frábærar pítsur og handverksbjór. Um næstu helgi verður bjórhátíð Ölverks haldin í annað sinn. Hátíðin er haldin í stóru gróðurhúsi miðsvæðis í Hveragerði og þar gefst gestum tækifæri á að kynna sér framleiðslu fjölda íslenskra brugghúsa. Að sögn Laufeyjar verða þar bæði lítil handverksbrugghús víða að á landinu sem og stóru brugghúsin. „Auk þess verða líka framleiðendur þarna sem gera viskí, kokteila og mjöð svo það verður úr nægu að velja,“ segir Laufey sem sjálf er formaður samtaka íslenskra handverksbrugghúsa.

Bjartmar mætir á svæðið

Bjórhátíðir hafa átt nokkrum vinsældum að fagna hér á landi síðustu ár. Laufey segir að bjórheimurinn sé mjög vingjarnlegur geiri og það smiti út frá sér til gesta. „Þegar eitt brugghús stendur fyrir hátíð eru öll hin til í að mæta og taka þátt. Bjórhátíðir eru yfirleitt með einhverju þema og við höfum helst lagt áherslu á að vera með stór og flott tónlistaratriði sem auka bónus fyrir hátíðargesti. Að þessu sinni geta gestir séð Bjartmar Guðlaugsson og Hjálma troða upp auk DJ-setta frá FM Belfast og Gunna Ewok. Svo verða mögulega einhverjir fleiri.“

Laufey Sif Lárusdóttir, einn eigenda Ölverks í Hveragerði.
Laufey Sif Lárusdóttir, einn eigenda Ölverks í Hveragerði.

Hún segir að það sé frábær tilbreyting þegar haustlægðir ganga yfir og vetur er að ganga í garð að gera vel við sig í upphituðu gróðurhúsi. „Við erum svolítil hitabeltisdýr hér í Hveragerði. Okkur líður best í hita og jafnvel smá raka.“

Sterkar sósur og dósabjór

Greint var frá því í Morgunblaðinu fyrir helgi að Ölverk hygði á frekari uppbyggingu í Hveragerði. Haft var eftir bæjarstjóranum að áform væru uppi um ferðatengda þjónustu í tengslum við bjór og bjórgarð. Laufey segir ekki tímabært að tala um þau áform en neitar því ekki að hún og maður hennar Elvar Þrastarson vilji styrkja stoðirnar undir Ölverk. Sú vegferð hafi raunar hafist þegar kórónuveirufaraldurinn skall á. Ölverk hóf framleiðslu á sterkum chili-sósum sem seldar eru víðar og bjór fyrirtækisins fæst nú í dósum í Vínbúðunum. „Við fundum það í Covid að það er betra að vera með fjölbreytta starfsemi. Í stað þess að bíða eftir því að fólk kæmi til okkar fundum við lausnir til að við gætum komið til okkar viðskiptavina. Sá angi af Ölverk á bara eftir að fara stækkandi.“

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 18. október 2021.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert