Hjólið snýst og snýst

Róbert Lee Tómasson æfir grimmt.
Róbert Lee Tómasson æfir grimmt. Ljósmynd/Aðsend

Róbert Lee Tómasson, félagi í Tindi hjólreiðafélagi, bíður spenntur eftir því að taka þátt í keppnum á næsta ári. Hann varð af nokkrum slíkum í ár vegna kórónuveirufaraldursins og þar af tveimur erlendis. Hins vegar tók hann þátt í áskorun Tinds, „Tindur 1.000“, sem fólst í því að hjóla samtals 1.000 km í ágúst. Hann gerði gott betur og hjólaði ríflega 2.200 km. „Ég hafði hjólað lengst um 1.500 kílómetra á mánuði og með leyfi frá frúnni ákvað ég að láta á það reyna hvað ég kæmist langt,“ segir hann.

Tindur var stofnaður 2011 og eru um 260 karlar og konur skráðir félagar. Svanur Daníelsson, formaður félagsins, segir að mikil gróska sé í starfinu. Skipulagðar æfingar séu þrisvar í viku og félagið haldi bæði götu- og fjallahjólakeppni auk þess sem farið hafi verið í æfingaferð til Kanarí eða Tenerife undanfarin vor. „Faraldurinn hefur truflað okkur eins og aðra. Þess vegna ákváðum við að vera með þessa áskorun í ágúst og hún heppnaðist mjög vel,“ segir hann. Níutíu manns hafi skráð sig til keppni og um 60 náð að hjóla að minnsta kosti 1.000 km. Þar af hafi fjórir hjólað 1.700 km eða meira.

Svanur Daníelsson stýrir öflugu félagi.
Svanur Daníelsson stýrir öflugu félagi. Ljósmynd/Aðsend

Vegna samkomutakmarkana gátu félagsmenn ekki æft saman í fjölmennum hópum í sumar. Inniæfingar hafa verið í World Class á veturna en þær hafa fallið niður af sömu ástæðu. Svanur segir að í staðinn hafi félagar hjólað „saman“ hver á sínum stað í sýndarveruleika undir stjórn þjálfara, en Tómas Skov Jensen er yfirþjálfari. „Á hverri æfingu eru allir tengdir við samskiptaforrit, Meet Up á Facebook, og því sýnilegir hver öðrum.“

Stífar æfingar

Róbert segist hafa hjólað mikið á árunum í kringum tvítugsaldurinn og svo hafi hann aftur tekið upp þráðinn fyrir um átta árum og gengið í Tind. „Undanfarin þrjú ár hef ég verið í mjög stífum æfingum, hjólað um tíu tíma á viku, um 1.000 kílómetra að meðaltali á mánuði,“ segir hann.

Svanur segir að mikil aukning hafi verið í starfsemi félagsins í fyrra og á líðandi ári, þrátt fyrir ástandið í samfélaginu. „Það varð algjör sprenging, ekki síst í hópi kvenna, og fjöldi á æfingum fjórfaldaðist í sumar miðað við það sem áður var,“ segir hann. Skipulagðar æfingar hafi verið á fáförnum stöðum, en innanfélagskeppni hafi fallið niður fyrir utan fjallahjólamót í Esjunni daginn áður en fjöldatakmarkanir voru hertar í október. „120 manns kepptu, einn og einn í einu, og við gættum þess að virða reglur um leyfilegan fjölda og fjarlægð á milli manna,“ segir Svanur. „Um 30 manns voru í vikuferðinni til Kanarí í mars og þá náðum við að hjóla í þrjá daga af fimm skipulögðum, hjóluðum um 150 kílómetra á dag að meðaltali, en vegna faraldursins vorum við síðan lokuð inni á hóteli þar til við fórum heim.“

Róbert hjólar daglega og segir erfitt að gera upp á milli þess að hjóla á fjallahjóli í breytilegu landslagi eða á götuhjóli í bæjum og borgum. „Ég var skráður í keppni á Ítalíu í júní og í Portúgal í september en þeim var frestað til næsta árs og vonandi verða þær að veruleika.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert