Dýrasta vara Góða hirðisins frá upphafi er slitinn stóll Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 7. desember 2021 22:41 Það hefur þurft gott auga fyrir hönnunarvörum til að kveikja á því að stóllinn væri gömul hönnunarvara. vísir/sigurjón Danskur hönnunarstóll er orðin dýrasta vara sem Góði hirðirinn hefur sett á sölu frá upphafi. Gersemin barst nytjavörumarkaðnum óvænt í gám frá Sorpu og gerir rekstrarstjóri hennar ráð fyrir að eigandi stólsins hafi ekki áttað sig á hverju hann væri að henda.
Það heyrir auðvitað til algerrar undantekningar að í nytjavörumarkaðnum séu seldar vörur í dýrari kantinum. Því brá mörgum nokkuð í brún þegar þeir sáu verðið á stól, sem er nýkominn í verslun Góða hirðisins. Hann kostar hálfa milljón króna. „Þetta er myndi ég segja dýrasta varan sem við höfum fengið og við fórum í mikla rannsóknarvinnu þegar hann barst okkur í gám. Og hann er að seljast erlendis á svona 750 til 850 þúsund,“ segir Ruth Einarsdóttir, rekstrarstjóri Góða hirðisins. Stóllinn margumtalaði í öllu sínu veldi. Áklæðið fremst á setunni er örlítið slitið.vísir/sigurjón Fór á 51 þúsund fyrir tveimur árum Stóllinn er nefnilega dönsk hönnunarvara frá 6. áratugnum. Og við lauslega leit á netinu koma upp erlendar sölusíður sem selja gerð af stólnum með leðuráklæði á 800 til 900 þúsund krónur. Fréttastofa leitaði hins vegar í kjölfarið ráðgjafar hjá danska uppboðshúsinu Lauritz sem sagði okkur að stóll af þessari gerð hefði verið seldur á uppboði fyrir tveimur árum á 2.600 danskar krónur, sem gera 51 þúsund íslenskar krónur. Það er dálítið ódýrara en í Góða hirðinum. Þó má ekki gleymast að ágóðinn af sölunni fer í gott málefni. „Grunnmarkmiðið er að koma sem mestu í endurnot en hitt er að styðja við líknarfélög. Þannig þetta gefur okkur tækifæri til að bústa aðeins upp reksturinn hjá okkur og geta bara látið gott af okkur leiða til líknarfélaganna,“ segir Ruth. Ruth Einarsdóttir er verslunarstjóri Góða hirðisins. Hún tók við starfinu fyrir þremur árum en á þeim tíma hefur endursöluhlutfall verslunarinnar rokið upp úr 26 prósentum upp í 65 prósent. vísir/sigurjón Fólk hefur þegar sýnt stólnum áhuga og margir haft samband við Góða hirðinn vegna hans. „Já, það er búið að vera mikill áhugi. Okkur hafa borist nokkrir tölvupóstar þar sem fólk er með fyrirspurnir og vill fá að vita meira.“ En ætli eigandinn hafi vitað hverju hann væri að henda? „Mér finnst það mjög ólíklegt að hann hafi áttað sig á því hvað þetta væri. Þetta er náttúrulega bara glæsilegur stóll. En það eru mikil verðmæti í þessu,“ segir Ruth.
Verslun Reykjavík Sorpa Hús og heimili Umhverfismál Tíska og hönnun Tengdar fréttir Gamlar vínylplötur seljast sem aldrei fyrr 17. nóvember 2020 19:00 Góði hirðirinn áfram á Hverfisgötu Rekstri verslunar Góða hirðisins á Hverfisgötu í Reykjavík verður fram haldið, en verslunin var opnuð í tilraunaskyni síðastliðinn nóvember þar sem kannað var hvort rekstrargundvöllur væri fyrir hendi. 11. febrúar 2021 11:17 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Innlent Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Innlent Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Innlent Fleiri fréttir Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Þrjár efstu með 75 prósent atkvæða Niðurstöður talningar: Kjörsókn með besta móti Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Neðstu sex fengu samanlagt rúm þrjú þúsund atkvæði Dauðþreyttur Jón eyddi átta milljónum króna Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Halla Hrund með hjartað fullt af þakklæti Aukafréttatími Stöðvar 2 Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Fólk streymir í Bláa lónið á ný og sér eldgosið vel „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Sjá meira
Góði hirðirinn áfram á Hverfisgötu Rekstri verslunar Góða hirðisins á Hverfisgötu í Reykjavík verður fram haldið, en verslunin var opnuð í tilraunaskyni síðastliðinn nóvember þar sem kannað var hvort rekstrargundvöllur væri fyrir hendi. 11. febrúar 2021 11:17