Spítalinn þoli ekki tvo daga í viðbót í óbreyttu ástandi Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 11. janúar 2022 19:56 Hildur Helgadóttir er verkefnastjóri farsóttanefndar Landspítala. vísir/sigurjón Sóttvarnalæknir segir að óbreyttu stefna í algjört neyðarástand í heilbrigðiskerfinu. Búast megi við yfir þúsund smitum á dag út mánuðinn sem Landspítalinn segist engan veginn ráða við. Stjórnvöld framlengdu samkomutakmarkanir um þrjár vikur í dag. „
Ég held að það sé ekkert launungarmál að við á Landspítalanum hefðum viljað sjá hertar aðgerðir. Við hefðum viljað sjá meiri takmarkanir,“ segir Hildur Helgadóttir, verkefnastjóri farsóttanefndar Landspítala. „Við þolum ekki fleiri daga af þúsund til tólf, þrettán hundruð smitum. Það er alveg ljóst. Þannig að ef að sú þróun heldur áfram næstu tvo daga þá munum við held ég berja enn fastar á dyrnar,“ segir Hildur. Í minnisblaði sóttvarnalæknis sem hann skilaði til heilbrigðisráðherra í gær varar hann við því að við óbreyttar takmarkanir geri allar spár ráð fyrir þúsund smituðum á dag út janúarmánuð. Hún hafi þó skilið stjórnvöld þannig að þau séu tilbúin til að herða ef næstu dagar sýni þörfina á því. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sagði einmitt eftir ríkisstjórnarfund í morgun að það þyrði fylgst vel með þróuninni á næstu dögum. Búin að vara stjórnvöld við Landspítalinn hefur verið starfandi á neyðarstigi í tvær vikur í dag. En hvað þarf að gerast til að spítalinn segi stjórnvöldum að nú verði að grípa í taumana? „Við erum í raun og veru búin að segja það að það þurfi að gera það núna. En við skiljum alveg að fólk vilji aðeins sjá smitin, hvernig daglegu smitin eru, þau voru lægri um helgina. Þau eru aftur hærri núna,“ segir Hildur. Spítalinn þegar sprunginn Nú verði fólk að taka höndum saman til að forða heilbrigðiskerfinu frá falli og taka minni áhættu í sínu daglega lífi til að minnka álag á bráðamóttökuna og spítalann í heild sinni. „Að sumu leyti er þetta sprungið nú þegar þegar ekki er hægt að sinna þeim lögbundnu verkefnum sem spítalinn á að sinna. Það sem er held ég svo mikilvægt er að fólk taki höndum saman að verja heilbrigðiskrefið sitt og bara hafi sig algjörlega hægt. Ef allir kæla sig niður,“ segir Hildur. Þannig ætti fólk að fara að taka núverandi bylgju eins alvarlega og fyrri bylgjum faraldursins. „Ef að hver og einn lítur í eigin barm og dregur sig aðeins í hlé þá komumst við í gegn um þetta.“ Þannig minna fyllerí og ferðalög? „Já, minna fyllerí og ferðalög, takk.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Heilbrigðismál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Samkomubann á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Fleiri fréttir Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Sjá meira