Óku á aðskotahlut og ein óökufær

Óhappið varð á Reykjanesbraut.
Óhappið varð á Reykjanesbraut. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um umferðaróhapp á Reykjanesbraut rétt fyrir klukkan átta í morgun.

Þar höfðu þrjár bifreiðar ekið á aðskotahlut sem borist hafði frá enn öðru ökutæki.

Ein bifreiðanna reyndist óökufær eftir ákeyrsluna og þurfti að draga hana af vettvangi með dráttarbifreið, að því er segir í skeyti frá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert