Sífellt fleiri leita til heilsugæslunnar vegna langvinnra eftirkasta af Covid-19 Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 15. apríl 2021 18:31 Á fjórða hundrað manns hafa leitað til Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna langvarandi eftirkasta af Covid-19 frá upphafi faraldursins. Fólk kvartar aðallega yfir mikilli þreytu, úthaldsleysi og heilsukvíða.
Verið er að rannsaka hversu margir fá við langvinn eftirköst af Covid en þó eru komnar fram tilgátur. „Þeir sem voru á gjörgæslu eru alltaf lengi að jafna sig og svo þeir sem fá blóðtappa sem eru einnig í sama hópi en og svo eru það þeir sem veiktust lítið en eru þrjá mánuði eða lengur að jafna sig og sá hópur er um 10-20% af þeim sem veikjast af Covid-19,“ segir Alma Möller landlæknir. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, embætti landlæknis og Landspítali bjóða til upplýsingafundar fyrir blaðamenn vegna KórónuveirunnarFoto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson Á síðasta ári leituðu um tvöhundruð og þrjátíu manns til heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna langvarandi einkenna. Í febrúar á þessu ári voru sjúklingarnir þegar orðnir um 130. „Það eru fleiri að fá greininguna núna en á síðasta ári.Við verðum mest vör við orkuleysi, þreytu og erfiðleika að ná aftur krafti . Þá er heilsukvíði og andleg áhrif greinilega til staðar,“ segir Óskar Reykdalsson forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ung kona sem fréttastofa ræddi við í gær gagnrýndi að fátt hefði verið um svör þegar hún leitaði til heilsugæslunnar vegna slíkra einkenna. Óskar segir að ákveðið ferli sé til staðar þegar fólk leitar til heilsugæslunnar. „Fólki er ávísað svokölluðum hreyfiseðlum en hreyfing er mikilvæg eftir að fólk fer að byrja að ná bata. Við aðstoðum fólk við að fara í sjúkraþjálfun og svo eru það sálfræðiviðtöl eða viðtöl við okkar lækna og hjúkrunarfræðinga sem fólk fær,“ segir Óskar. Þeim verst settu sé beint á meðferðarstofnanir eins og Reykjarlund, Heilsustofnun í Hveragerði og Kristnes en hátt í tvöhundruð manns eru í eða bíða meðferðar. Óskað hefur verið eftir að komi aftur hertra samkomutakmarkana og líkamsrækt loki að þá verði eitthvað úrræði opið fyrir fólk sem er að ná sér af Covid. Sóttvarnarlæknir fékk slíkt erindi í vikunni. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.Vísir/Vilhelm „Það er bara alls ekkert útilokað að það yrði útfært með einhverju móti. En ég vona að það komi ekki til þess og að við getum bara haldið áfram með þær opnanir sem tóku gildi í dag,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Félagsmál Heilsugæsla Tengdar fréttir Fleiri þurfi meðferð vegna kvíða og þunglyndis í kjölfar faraldursins Forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði segir sífellt fleiri leyta til stofnunarinnar vegna kvíða og þunglyndis sem rekja megi til þeirra áhrifa sem kórónuveirufaraldurinn hafi haft á samfélagið. Þá hafi mörgum farið líkamlega aftur í faraldrinum og óskað eftir innlögn. 15. apríl 2021 12:01 „Það er engin umræða, það er eins og eftirköst Covid séu ekki til“ Þrítug kona sem fékk Covid-19 gagnrýnir úrræðaleysi í heilbrigðiskerfinu gagnvart þeim sem kljást við langvarandi afleiðingar sjúkdómsins. Hún segir fólk í sinni stöðu verða fyrir bakslagi þegar sundlaugum og líkamsræktarstöðvum er lokað og óskar eftir sértækum lausnum. Tugir bíða endurhæfingar. 14. apríl 2021 18:54 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira
Fleiri þurfi meðferð vegna kvíða og þunglyndis í kjölfar faraldursins Forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði segir sífellt fleiri leyta til stofnunarinnar vegna kvíða og þunglyndis sem rekja megi til þeirra áhrifa sem kórónuveirufaraldurinn hafi haft á samfélagið. Þá hafi mörgum farið líkamlega aftur í faraldrinum og óskað eftir innlögn. 15. apríl 2021 12:01
„Það er engin umræða, það er eins og eftirköst Covid séu ekki til“ Þrítug kona sem fékk Covid-19 gagnrýnir úrræðaleysi í heilbrigðiskerfinu gagnvart þeim sem kljást við langvarandi afleiðingar sjúkdómsins. Hún segir fólk í sinni stöðu verða fyrir bakslagi þegar sundlaugum og líkamsræktarstöðvum er lokað og óskar eftir sértækum lausnum. Tugir bíða endurhæfingar. 14. apríl 2021 18:54