Innlent

Matvöruverslanir muni beina þeim tilmælum til viðskiptavina að bera grímur

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ.
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ.

Fólk mun einungis þurfa að bera grímur þar sem ekki er unnt að tryggja eins metra fjarlægðarmörk á milli einstaklinga eða þegar húsnæði er illa loftræst. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir óskýrleika í reglugerð.

Vafi hefur leikið á því hvort grímuskyldan, sem nú er í gildi, sé almenn eða ekki. Hér að neðan veltir Arnór þessu fyrir sér á Twitter og svarar heilbrigðisráðherra því til að grímuskyldan sé almenn.

Samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðisráðuneytinu ber fólki þó einungis skylda til að bera grímur þar sem ekki er unnt að tryggja eins metra fjarlægðarmörk á milli einstaklinga eins og áður segir.

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að matvöruverslanir muni beina þeim tilmælum til fólks að bera grímur í verslunum.

„Öll matvöruverslunin mun beina þeim tilmælum til viðskiptavina sinna að vera með grímur inni í búðunum. Við getum ekki gengið lengra því að sú reglugerð sem er í gildi hún heimilar okkur ekki að skylda viðskiptavini til þess að gera þetta. Þannig bara til þess að auðvelda fólki lífið og gera þetta skýrara en nú er þá bara eru þessi tilmæli sem matvöruverslunin gefur viðskiptavinum sínum. Lengra getum við ekki stigið eins og staðan er núna.“

Hann segir að óvissa hafi ríkt hjá verslunareigendum

„Ruglingurinn felst fyrst og fremst í því að Covid.is segir aðra sögu en reglugerðin. Þar liggur hundurinn grafinn. Það er náttúrulega mjög ámælisvert ef stjórnvöld geta ekki komið upplýsingunum skýrt frá sér. Það veldur ruglningi eins og komið hefur í ljóst.“

„Það sem kannski verra er að þetta er ekki í fyrsta skipti í þessu ferli öllu sem heilbrigðisráðuneytið misstígur sig í samningu reglna um þetta. Hafa áður þurft að stíga fram og leiðrétta þær reglugerðir sem þeir hafa sett. Það hlýtur að teljast mjög ámælisvert.“

Gagnrýnir óskýrleika

„Við erum boðin og búin til þess að vinna með stjórnvöldum að lausn þess vanda sem uppi er. Eina krafan sem við gerum er að skýrleiki þeirra reglna sem við eigum að fara eftir sé ótvíræður. Það skortir mjög á að svo sé eins og staðan er núna. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×