Sektaður á leiðinni til mömmu á 37 kílómetra hraða Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. janúar 2023 12:54 Ólafur Páll ásamt Siggu Lund og Hvata þegar Bylgjulestin heimsótti Akranes sumarið 2022. Vísir/Hulda Margrét Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður á Rás 2 er hugsi eftir að hafa í annað sinn á einu ári verið sektaður fyrir að aka á 37 kílómetra hraða í heimabæ sínum Akranesi. Skiptar skoðanir er á því hvernig bregðast eigi við kappakstri á Seltjarnarnesinu á föstudagskvöld.
Ólafur Páll, sem stýrði sínum 1300. þætti af Rokklandi í gær, stingur niður penna í umræðum á Facebook. Tilefnið eru fréttir af ofsaakstri ökumanna á Seltjarnarnesi á föstudagskvöld þar sem telja má mikið happ að enginn slasaðist alvarlega. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins birti þessa mynd af bílunum sem skullu saman á föstudagskvöld. Tveir bílar lentu saman á Norðurströnd á Seltjarnarnesi laust eftir klukkan ellefu á föstudagskvöld. Annar ökumannanna hafði verið að taka fram úr bíl þegar hann lenti framan á hinum, sem kom úr gagnstæðri átt. Betur fór en á horfðist, enginn slasaðist alvarlega en fimm sem voru í bílunum voru fluttir á sjúkrahús. Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi sagði í kvöldfréttum í gær að grípa þurfi til aðgerða til að sporna við hraðakstri á þessum kafla, ekki síst þar sem göngugötur liggja yfir veginn á nokkur hundruð metra millibili. „Hraðamyndavélar og sektandi myndavélar hafa komið til tals. Nú er það á forræði lögreglunnar að raða slíku niður á höfuðborgarsvæðinu. Við munum kalla eftir að hér verði gripið til aðgerða,“ sagði Þór. Hann ætlaði strax í dag að óska eftir fundi með lögreglu vegna málsins. Egill vill lækka hraða og bæta lýsingu Egill Helgason sjónvarpsmaður segist aka þennan veg oft í viku á leiðinni út í Gróttu. „Aksturslagið þar er algjörlega brjálæðislegt, mikið um kappakstur, hraðakstur og framúrakstur. Mátulegur hraði er 40 á þessum vegi,“ segir Egill. Egill Helgason vill sjá lægri hámarkshraða á Norðurströnd. Lægri hraði á Hringbraut hafi verið góð breyting.Vísir/Vilhelm „Hann er ekki vel upplýstur og þarna eru varasamar beygjur. Nú eða setja upp hraðahindranir. Mér finnst ástandið á gömlu Hringbrautinni milli Ánanausta og Háskólans hafa batnað ansi mikið eftir að hraðinn var lækkaður niður í 40.“ Vísar Egill til þess að hraðinn á Hringbrautinni var lækkaður eftir ákall íbúa í hverfinu. Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður, segir algjöra rökleysu að lækka hraðann vegna þessa slyss. „Halda menn að ökuþórarnir hefðu hætt við kappaksturinn ef hámarkshraðinn á þessari götu hefði verið lægri?! Það er þó allavega einhver snefill af rökhugsun í að hækka ökuleyfisaldurinn…“ Fimmtíu kílómetra hámarkshraði er á Norðurströnd en talið er að þeir sem urðu valdar að slysinu á föstudagskvöld hafi verið á nærri 100 kílómetra hraða. Yfirvöldum svona annt um okkur? Ólafur Páll er meðal þeirra sem leggur orð í belg. „Ég var sektaður fyrir of hraðan akstur í vikunni sem leið - í miðbænum á Akranesi á 37 km hraða,“ segir Ólafur Páll. Hámarkshraði í götunni er 30 kílómetrar á klukkustund. Hann segist einnig hafa lent í þessu fyrir ári þegar hann var á leið til mömmu sinnar í kaffi á 37 kílómetra hraða. „Löggan situr fyrir annars löghlýðnum borgurunum á ómerktum bíl og flassar á lögbrjótana. Ég spurði lögreglumanninn sem flassaði á mig í vikunni hvers vegna þeir væru að þessu og hann sagði: Til þess að ná niður hraðanum. Ég er búinn að vera að hugsa um þetta síðan,“ segir Ólafur Páll. Hraðakstur sé vissulega hættulegur og hraðinn drepi. „En er yfirvöldum svona annt um okkur borgarana að þau sekta okkur fyrir að vera á 37 á leiðinni í kaffi til mömmu?“ spyr Ólafur Páll.
Seltjarnarnes Samgöngur Umferð Akranes Lögreglumál Tengdar fréttir Kallar eftir fundi með lögreglu og vill hraðamyndavél á Norðurströnd Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi mun óska eftir fundi með lögreglunni strax í fyrramálið vegna alvarlegs bílslyss sem varð í bænum á föstudag. Bæjarbúar vilja að gripið verði til aðgerða til að koma í veg fyrir hraðakstur, til dæmis með uppsetningu hraðamyndavélar. 29. janúar 2023 22:16 „Hraðakstur er dauðans alvara“ Betur fór en á horfðist þegar tveir bílar, sem komu úr gagnstæðri átt, lentu saman á Seltjarnarnesi. Sjónvarvottar telja að annar þeirra hafi verið á hátt í hundrað kílómetra hraða. Varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar biðlar til fólks að aka varlega og eftir aðstæðum. 28. janúar 2023 19:31 Lýsir aðdraganda bílslyssins á Seltjarnarnesi Kona sem varð vitni að alvarlegum árekstri á Seltjarnarnesi í gærkvöld segir betur hafa farið en á horfðist þegar tveir bílar skullu saman eftir kappakstur tveggja ungra ökumanna. 28. janúar 2023 14:12 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vaknaði og barnið var horfið Innlent Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Innlent Maðurinn ríkisborgari Möltu Innlent Fleiri fréttir Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Starfsmaður Sjúkratrygginga grunaður um fjárdrátt Óska eftir tilnefningum um Reykvíking ársins Þvingun úr landi og prestar í kisubúning Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brottvísun Vænsti maður og harðduglegur Spreyjaði málningu á bifreiðar í miðbænum Fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir árekstur Kaldavatnslaust á Arnarnesi Telur ekki viðeigandi að tjá sig um mál Maríu Sigrúnar Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Lýsa eftir Bandaríkjamanni Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Tekur til varna eftir stuðningsyfirlýsingu við Katrínu Maðurinn ríkisborgari Möltu Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Sýnist stefna í kapphlaup tveggja en útilokar þó ekki vendingar Mótmæla þróun gervigreindar á Austurvelli Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úrelt Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Guðni heldur utan til að kveðja Margréti Þórhildi Telur ástandið á sauðfjárbúinu ekki eins slæmt og menn vilja vera láta Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Hvar eru Illugi Jökuls, Hallgrímur Helga, Atli Þór Fanndal? Sjá meira
Kallar eftir fundi með lögreglu og vill hraðamyndavél á Norðurströnd Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi mun óska eftir fundi með lögreglunni strax í fyrramálið vegna alvarlegs bílslyss sem varð í bænum á föstudag. Bæjarbúar vilja að gripið verði til aðgerða til að koma í veg fyrir hraðakstur, til dæmis með uppsetningu hraðamyndavélar. 29. janúar 2023 22:16
„Hraðakstur er dauðans alvara“ Betur fór en á horfðist þegar tveir bílar, sem komu úr gagnstæðri átt, lentu saman á Seltjarnarnesi. Sjónvarvottar telja að annar þeirra hafi verið á hátt í hundrað kílómetra hraða. Varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar biðlar til fólks að aka varlega og eftir aðstæðum. 28. janúar 2023 19:31
Lýsir aðdraganda bílslyssins á Seltjarnarnesi Kona sem varð vitni að alvarlegum árekstri á Seltjarnarnesi í gærkvöld segir betur hafa farið en á horfðist þegar tveir bílar skullu saman eftir kappakstur tveggja ungra ökumanna. 28. janúar 2023 14:12