Grét á fundinum með forseta Barcelona og vill vera áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2021 14:00 Samuel Umtiti þarf að dúsa á bekknum hjá Barcelona en fær ekkert að spila. Getty/Pedro Salado Samuel Umtiti var án efa óvinsælasti leikmaður Barcelona í haust þegar hann vildi ekki yfirgefa félagið og neita því að hjálpa til við að koma nýjum samningi Lionel Messi undir launaþakið.
Stuðningsmenn Barcelona gerðu Umtiti að blóraböggli og kenndu honum um það að Messi fór til PSG. Það var baulað hressilega á hann þegar hann kom inn á sem varamaður í leiknum um Joan Gamper bikarinn. Umtiti var svo sár að hann rauk inn í klefa og var ekki með í verðlaunaafhendingunni. Leikurinn um Joan Gamper bikarinn er síðasti æfingarleikurinn hjá Barcelona fyrir tímabilið á hverju hausti þar sem liðið mætir einu af sterkustu liðum í Evrópu. Hann fer alltaf fram á Nývangi og er spilaður til heiðurs Joan Gamper, stofnmeðlims og fyrrum forseta félagsins. 'Umtiti breaks his silence' [md] pic.twitter.com/lad1YoHelV— barcacentre (@barcacentre) October 18, 2021 Þetta tók hins vegar mikið á fyrir franska varnarmanninn sem er með samning við Barcelona til ársins 2023. Hann hefur þó ekki spilað eina mínútu í spænsku deildinni eða Meistaradeildinni í vetur. „Baulið særði mig. Ég hélt að þetta gæti aldrei gerst hjá þessu félagi því þetta er félagið sem ég elska,“ sagði Samuel Umtiti í viðtali við Mundo Deportivo. „Þetta er mjög erfitt andlega. Ég hef líka átt erfiðar stundir í sambandi við meiðslin en ég er betri í skrokknum núna. Ég er ánægður en ég vildi frá að spila og hjálpa liðinu. Þjálfarinn tekur ákvarðanirnar en ég verða að sýna honum að ég sé nógu góður til að spila. Ég verð að halda áfram að leggja mig fram á æfingum,“ sagði Umtiti. Barcelona bauð honum að fara á frjálsri sölu í sumar en hann hafnaði því. Hann fór á fund með forsetanum Joan Laporta og sannfærði hann um að gefa sér annað tækifæri. „Þetta var mjög tilfinningaríkt samtal fyrir mig. Ég þurfti að létta á mér og að hann vissi að ég væri í góðu formi og að ég vildi hjálpa liðinu,“ sagði Umtiti. Samuel Umtiti: My intention is to fulfil my contract. I want to succeed here and I don't see myself anywhere else. pic.twitter.com/BMI3ALdQu6— Barça Worldwide (@BarcaWorldwide) October 19, 2021 „Ég grét á fundinum. Við töluðum um mjög erfið mál og þetta tók mikið á. Ég tala ekki mikið en þegar ég segi eitthvað þá kemur það frá hjartanu,“ sagði Umtiti. Barcelona keypti Umtiti fyrir 25 milljónir evra frá Lyon árið 2016. Hann hefur verið að glíma við hnémeiðsli sem hann varð fyrir á HM í Rússlandi 2018 þegar hann varð heimsmeistari með Frökkum. „Það eru sex miðverðir í hópnum og ég vissi að það yrði erfitt að fá mínútur. Ég er samt viss um að ég sé nógu góður og ég ætla að reyna að sanna það. Ég er í betra formi en ég hef nokkurn tímann verið en vantar bara spilaform. Ég sé mig ekki spila fyrir neitt annað félag. Fótboltinn er mitt líf og Barcelona er mitt líf. Ég sé mig hérna og vil ná árangri hér,“ sagði Umtiti.
Spænski boltinn Mest lesið Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Í beinni: Keflavík - Njarðvík | Leikur eitt í baráttunni um titilinn Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn UEFA setur pressu á City Football Group Fótbolti Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Handbolti Fleiri fréttir Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Sjá meira