Fólk varð rosalega stressað við að heyra þetta Stefán Árni Pálsson skrifar 21. október 2021 10:30 Arna Ýr ætlar sér sjálf að verða ljósmóðir. Arna Ýr Jónsdóttir hjúkrunarfræðinemi ákvað snemma á sínum meðgöngum að fæða heima og segir neikvæðar fæðingarupplifanir of háværar í samfélaginu.
Hún lét ekki gagnrýnisraddir á sig fá og vill opna augu fólks fyrir heimafæðingum og góðum upplifunum af fæðingum almennt, heima eða á sjúkrahúsi. Eva Laufey hitti Örnu nú á dögunum í Íslandi í dag og fékk að heyra hennar fæðingarsögur. „Þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið varðandi fæðinguna. Upplifunin var svo róleg og það var svo töfrandi andrúmsloft að fæða heima. Ég veit ekki hvort ég get útskýrt þetta án þess að fólk upplifi þetta. Bara ótrúlega rólegt í sínu eigin umhverfi,“ segir Arna Ýr og heldur áfram. Fæðingin gekk eins og í sögu. „Ég vildi rosalega hafa ljósmyndara með til að geta átt þetta á myndbandi og á myndum og til að eiga minninguna. Ég hef svo mikinn áhuga á því að verða ljósmóðir í framtíðinni og það er svo æðisleg upplifun að hafa upplifað heimafæðingu eða á spítala líka.“ Arna segir að margir tengi deifingu, glaðloft eða keisara við eitthvað öryggi. „En eins og ljósmóðir mín útskýrði, þá er maður öruggur þar sem manni líður best. Það gæti vel verið að ég hefði lent í keisaraskurði, þurft deyfingu eða glaðloft eða eitthvað ef ég hefði verið á spítalanum. Ég var þarna rosalega mikil sófaklessa og elska að vera heima og það kom því í rauninni ekkert annað til greina en að vera heima í þetta skipti.“ Hún segist vera mjög meðvituð um það hvernig tilfinningin á að vera í fæðingu þar sem hún hefur áður gengið í gegnum ferlið. Því var alltaf á hreinu hvenær nauðsynlegt væri að fara upp á spítala ef eitthvað kæmi upp. „Svo er svo mikið fagfólk með manni sem grípur inn í ef eitthvað kemur upp. Á 37. viku er maður orðin löglegur að fæða heima og þá kemur fæðingarlaugin heim. Maður getur fengið að velja og mig langaði að fæða í laug og þess vegna var hún mætt. Það voru tvær fagmenneskjur viðstaddar, svo var ég með maka og ljósmyndara. Þegar maður er heima má maður í raun hafa þetta alveg eins og maður vill.“ Í innslaginu má sjá hvernig fæðingin gekk fyrir sig heima hjá parinu. „Þetta var örugglega eitt besta kvöld sem ég hef upplifað. Ég var með svo mikla stjórn og vissi hvað væri að gerast og gat notið augnabliksins.“ En fékk parið gagnrýni fyrir að fara þessa leið? „Nei reyndar ekki en fólk var rosalega stressað að heyra þetta. Það var bara ekki búið að kynna sér sömu hluti og við og ekki búið að mæta á þessa fundi með ljósmæðrum sem útskýra af hverju þetta sé öruggt.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Börn og uppeldi Mest lesið „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Lífið Bakaríið í beinni Lífið Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti Sjá meira