„Þetta gæti endað með ósköpum“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 23. september 2020 20:00
Fjármálaráðherra segir efnahagslegar forsendur fyrir áframhaldandi kjarabata launþega foknar út í veður og vind, kanna þurfi hvort fresta þurfi launahækkunum. Formaður VR segir að ef það gerist verði því svarað af hörku sem ekki hafi sést áður. Samkvæmt lífskjarasamningnum eiga taxtalaun að hækka um 24.000 krónur þann 1. janúar 2021 og föst laun um tæpar sextán þúsund krónur. og aftur þann fyrsta janúar 2022. Framkvæmdastjóri SA hefur sagt í fréttum okkar að engin innistæða sé fyrir þessum launahækkunum og fyrrverandi framkvæmdastjóri samtakanna sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að þær muni aðeins auka atvinnuleysi og verðbólgu. Forsendunefnd lífskjarasamningsins sem skipuð er þremur frá ASÍ og þremur frá SA fundaði um samninginn í dag en nefndin þarf að skila niðurstöðu fyrir næstu mánaðarmót. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir brýnt að bregðast við. „Efnahagslegu forsendurnar fyrir áframhaldandi kjarabata fyrir launþega eru foknar út í veður og vind. En samningsaðilar verða að ákveða hvernig á að bregðast við,“ segir Bjarni. Aðspurður um hvort það komi til álita að frysta tilvonandi launahækkanir segir Bjarni. „Það kemur mögulega til álita að fresta launahækkunum.“ segir hann. Formaður VR útilokar að slíkt verði samþykkt „Það er algjört glapræði að gera það. Við hefðum átt að læra af bankahruninu þegar bæði launahækkunum var frestað og gengið var harkalega að kjörum fólks. Þau mistök verða ekki endurtekin. Nú hefur matarkarfan rokið upp í verði og okkur veitir ekkert af þessum hækkunum og munum verja þær með kjafti og klóm,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson. Ragnar segir að búast megi við miklum átökum á vinnumarkaði verði samningurinn ekki virtur. „Ef að það verður farið gegn þessum samningi verður því svarað af hörku sem hefur ekki sést áður. Það er stemning innan hreyfingarinnar að verja lífskjarasamninginn og koma í veg fyrir að hér fari vinnumarkaðurinn á hliðina ofan í allt sem er á undan er gengið. Það væri hægt að pakka saman ef við fáum verkföll og átak á vinnumarkaði ofan á Covid ástandið svo hér verði jafnvel alkul á markaði,“ segir Ragnar. Ragnar þór segir að stjórnvöld hafi ennþá ekki uppfyllt skilyrði í lífskjarasamningnum um afnám á 40 ára verðtryggðum jafngreiðslulánum. Þá eigi eftir að ná niðurstöðu um hvenær grundvöllur verðtryggingar verði án húsnæðisliðar. „Við höfum þurft að toga nánast allt út með töngum til að fá stjórnvöld til að standa við gefin loforð og ennþá á eftir að ganga frá þessum loforðum,“ segir Ragnar. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra telur að síðastnefnda málið sé afgreitt. „Eftir þessi síðustu óformlegu samtöl hef ég ekki væntingar um að þetta mál verði klárað,“ segir Bjarni. „Það er einkennilegt að ríkisstjórn sem kennir sig við stöðugleika skuli bera ábyrgð á því að samningum sem verði mögulega sagt upp vegna forsendubrests sem þau bera mögulega ábyrgð á. Það er mín tilfinning að þetta gæti endað með ósköpum og það verður þá á ábyrgð ríkisstjórnarinnar,“ segir Ragnar.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Vinnumarkaður Efnahagsmál Kjaramál Tengdar fréttir „Innistæðulausar launahækkanir nú munu aðeins auka atvinnuleysi og verðbólgu“ Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins, segir forsendur kjarasamninga brostnar enda ráði atvinnulífið ekki við þær launahækkanir sem samið hefur verið um vegna Covid-kreppunnar. 23. september 2020 08:19 Segir enga innistæðu fyrir launahækkunum Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir enga innistæðu fyrir samningsbundnum launahækkunum um næstu áramót vegna Covid-kreppunnar. Aðilar vinnumarkaðarins hafa til loka mánaðarins til að meta hvort forsendur lífskjarasamninganna séu brostnar. 8. september 2020 18:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira
„Innistæðulausar launahækkanir nú munu aðeins auka atvinnuleysi og verðbólgu“ Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins, segir forsendur kjarasamninga brostnar enda ráði atvinnulífið ekki við þær launahækkanir sem samið hefur verið um vegna Covid-kreppunnar. 23. september 2020 08:19
Segir enga innistæðu fyrir launahækkunum Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir enga innistæðu fyrir samningsbundnum launahækkunum um næstu áramót vegna Covid-kreppunnar. Aðilar vinnumarkaðarins hafa til loka mánaðarins til að meta hvort forsendur lífskjarasamninganna séu brostnar. 8. september 2020 18:30