Útgöngubann sett á aftur í Ástralíu Árni Sæberg skrifar 21. júlí 2021 07:08 Bólusetningarröð í Ástralíu en bólusetningar hafa gengið mjög illa þar í landi. Jonathan Di Maggio/Getty Delta afbrigði kórónuveirunnar virðist nú á mikilli siglingu í Ástralíu og nú er svo komið að þrjú fjölmennustu ríki landsins hafa hert sóttvarnalögin á ný.
Það þýðir að rúmlega þrettán milljónir Ástrala, eða hálf þjóðin, þarf nú að halda sig heima enn eina ferðina. Fólk má einungis fara út til að versla í matinn, stunda líkamsrækt og sinna allra nauðsynlegustu erindum. Reiði fer nú vaxandi meðal almennings að sögn breska ríkisútvarpsins en óljóst er hve lengi reglurnar munu verða í gildi í stórborgunum Sydney og Melbourne. Rúmlega fimmtán hundruð hafa smitast af Delta-afbrigðinu í Sydney, þar af 110 í dag. Samkvæmt spálíkani eru líkur á að taka muni nokkra mánuði að kveða afbrigðið í kút í borginni. Því er óttast að útgöngubann verði í gildi fram í september. Delta-afbrigðið smitast mun greiðar en önnur afbrigði og reiði almennings beinist ekki síst að þeirri staðreynd að þrátt fyrir að Áströlum hafi gengið vel í baráttunni við faraldurinn hingað til er hlutfall bólusettra afar lágt. Aðeins er búið að bólusetja fjórtán prósent þjóðarinnar, sem er lægsta hlutfallið á meðal OECD ríkjanna.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ástralía Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svandís boðar til blaðamannafundar Innlent „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Innlent Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Innlent Fleiri fréttir Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Sjá meira