Krefst þyngingar á þyngstu fíkniefnadómum sögunnar Ólafur Björn Sverrisson skrifar 31. maí 2023 18:41 Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari sækir málið fyrir Landsrétti. Vísir Saksóknari krefst þess að dómar yfir sakborningum í saltdreifaramálinu svokallaða verði þyngdir. Tveir sakborningar hlutu tólf ára fangelsisdóm í málinu sem eru þyngstu dómar sem fallið hafa í í fíkniefnamáli hér á landi.
Málflutningu fór fram í málinu í Landsrétti í dag en dómar féllu í Héraðsdómi Reykjavíkur í október á síðasta ári. Fimm voru ákærðir og sakfelldir í málinu en um er að ræða eitt stærsta fíkniefnamál sem hefur komið upp hér á landi. Málið snýst um annars vegar innflutning mikils magns amfetamínbasa og hins vegar umfangsmikla kannabsiræktun á sveitabænum Hjallanesi við Hellu. Mbl.is greinir frá því að Anna Barbara Andradóttir saksóknari hafi krafist þyngingar refsingar yfir þeim Guðlaugi Agnari Guðmundssyni, Guðjóni Sigurðssyni, Halldóri Margeiri Ólafssyni og Ólafi Ágústi Hraundal. Krafan hafi verið rökstudd þannig að um fordæmalaust magn fíkniefna væri að ræða. Krafa um þyngingu refsingar Guðlaugs Agnars, sem dæmdur var í tíu ára fangelsi, hafi verið studd þeim rökum að hann hafi neitað að tjá sig við lögreglu og vísað til sakarferils hans sem nær til ársins 2003. Þáttur Guðjóns, sem einnig hlaut tíu ára fangelsi, hafi verið umfangsmeiri en hann hafi haldið fram. Hann hafi verið viðstaddur framleiðslu efnanna og fundið heppilegan stað til að geyma þau á jörð sinni í Hjallanesi. Í samtali við fréttastofu síðasta haust sagði Sigurður G. Guðjónsson verjandi Guðlaugs Agnars að það hafi ekki legið fyrir nein fíkniefni í málinu, aðeins hugmyndir um framleiðslu. Þess vegna yrði málinu áfrýjað. Halldór Margeir, sem hlaut 12 ára dóm, hafi ekki játað og það væri honum ekki til málsbóta. Ólafur Ágúst hlaut einnig 12 ára dóm. Hann játaði og neitaði ákæruliðum á víxl fyrir héraðsdómi. Hann hefur hlotið dóma í gegnum tíðina, meðal annars í Stóra fíkniefnamálinu svokallaða árið 2000 og fyrir annað stórfellt fíkniefnasmygl árið 2007. Uppfært: Í fyrri útgáfu stóð að Ólafur afplánaði á þessari stundu. Hið rétta er að hann situr í gæsluvarðhaldi eins og fleiri sakborningar á meðan málið er til meðferðar hjá Landsrétti.
Saltdreifaramálið Dómsmál Fíkniefnabrot Tengdar fréttir Dómar í saltdreifaramálinu þyngstu dómar sem fallið hafa í fíkniefnamáli Þyngstu dómar sem fallið hafa í fíkniefnamáli hér á landi féllu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Það voru tveir sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða sem hlutu dómana, sem hljóða upp á tólf ára fangelsi. Þrír aðrir voru dæmdir í fangelsi og verjendur hafa þegar ákveðið að áfrýja dómnum. 20. október 2022 20:09 Skýr ásetningur og krefst hámarksrefsingar Saksóknari í stóra kókaínmálinu segir að innflutningur á hundrað kílóum af kókaíni gæti ekki þýtt annað en hámarksrefingu fyrir sakborninga. Þetta kom fram í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða hefðu fengið allt að tólf ára dóm eða hámark refsirammans. 8. mars 2023 11:22 Telur ólíklegt að höfuðpaurarnir sleppi mikið betur í Landsrétti Afbrotafræðingur telur ólíklegt að þungir dómar höfuðpaura í sögulegu fíkniefnamáli verði mildaðir að ráði. Þá telur hún ekki ástæðu til að rýmka refsirammann, þó að umfang og tíðni fíkniefnabrota færist í aukana. Næstum tvöfalt fleiri fíkniefnabrot hafa verið skráð á Keflavíkurflugvelli það sem af er ári en allt árið í fyrra. 21. október 2022 21:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Halla þótti standa sig best Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Innlent Stefni í endurtekningu á síðasta vori Innlent Fleiri fréttir Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Sjá meira
Dómar í saltdreifaramálinu þyngstu dómar sem fallið hafa í fíkniefnamáli Þyngstu dómar sem fallið hafa í fíkniefnamáli hér á landi féllu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Það voru tveir sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða sem hlutu dómana, sem hljóða upp á tólf ára fangelsi. Þrír aðrir voru dæmdir í fangelsi og verjendur hafa þegar ákveðið að áfrýja dómnum. 20. október 2022 20:09
Skýr ásetningur og krefst hámarksrefsingar Saksóknari í stóra kókaínmálinu segir að innflutningur á hundrað kílóum af kókaíni gæti ekki þýtt annað en hámarksrefingu fyrir sakborninga. Þetta kom fram í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða hefðu fengið allt að tólf ára dóm eða hámark refsirammans. 8. mars 2023 11:22
Telur ólíklegt að höfuðpaurarnir sleppi mikið betur í Landsrétti Afbrotafræðingur telur ólíklegt að þungir dómar höfuðpaura í sögulegu fíkniefnamáli verði mildaðir að ráði. Þá telur hún ekki ástæðu til að rýmka refsirammann, þó að umfang og tíðni fíkniefnabrota færist í aukana. Næstum tvöfalt fleiri fíkniefnabrot hafa verið skráð á Keflavíkurflugvelli það sem af er ári en allt árið í fyrra. 21. október 2022 21:01