Svandís aftur komin í náðina hjá veitingamönnum Jakob Bjarnar skrifar 23. febrúar 2021 13:55 Jón Bjarni veitingamaður segist sáttur við þær breytingar sem Svandís kynnti í dag og hann segir að svo sé um þá sem hann hefur heyrt í nú í dag. Breytingarnar á samkomubanni sem kynntar voru í dag falla afar vel í kramið meðal veitingamanna.
Jón Bjarni Steinsson veitingamaður á Dillon segist þokkalega sáttur við nýjar tilslakanir sem greint var frá fyrr í dag. Og svo sé um kollega hans í veitingabransanum. „Allavega þeir sem ég hef heyrt í. Það munar um þetta.“ Myndi þiggja að lögreglan slaki á í sínu eftirliti Svandís Svavarsdóttir kynnti nýja tilhögun á samkomubanni í dag. Takmarkanir á samkomum hafa verið rýmkaðar úr tuttugu manns í fimmtíu. Varðandi skemmti -og veitingastaði þá mega þeir taka við nýjum gestum til klukkan 22 og þarf að vera búið að loka stöðunum klukkan 23. Er verið að seinka lokun staðanna um klukkustund. Ekki ætti að þurfa að fara mörgum orðum um að hart hefur verið í ári hjá veitingamönnum. Og þeir hafa gagnrýnt þær reglur sem þeim hefur verið gert að fara eftir. Hljóðið er ólíkt betra í Jóni Bjarna nú en þegar Vísir ræddi við hann snemma í október á síðasta ári. Segist þokkalega sáttur við hinar nýju tilslakanir; „gott að taka svo af allan vafa um það hvenær þarf að henda öllum út. Það sem mér finnst samt vanta er að fá smá hvíld frá stöðugu lögreglueftirliti - það er orðið meira en þreytt að fá inn til sín lögregluþjóna allar helgar.“ Munar um auka klukkutíma á kvöldi Jón Bjarni segir gott að sjá hreyfingu á málum. Hann segist hafa búið sig undir engar breytingar. Og er þá Svandís óvænt komin í náðina hjá veitingamönnum? „Jájá. Ég held líka að menn séu farnir að sjá fyrir endann á þessu. Mér sýnist febrúar hjá mér stefna i að það komi meira inn en fer út. Ég bið ekki um mikið meira.“ Jón Bjarni segist spurður þetta svo sem ekki breyta miklu fyrir sig og sinn rekstur. „Ég kem ekki mikið fleirum inn með tveggja metra reglu. En það munar um auka klukkutíma á kvöldi.“
Samkomubann á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Veitingastaðir Tengdar fréttir Fimmtíu manns mega koma saman Takmarkanir á samkomum verða rýmkaðar úr tuttugu manns í fimmtíu. Reglugerðin tekur gildi á morgun. 23. febrúar 2021 11:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Erlent Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Erlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Innlent Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Innlent Kanna hvar Perry fékk ketamínið Erlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Innlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Innlent Fleiri fréttir Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Sjá meira
Fimmtíu manns mega koma saman Takmarkanir á samkomum verða rýmkaðar úr tuttugu manns í fimmtíu. Reglugerðin tekur gildi á morgun. 23. febrúar 2021 11:33