Karen nýr verkefnastjóri Græns iðngarðs

Karen Mist, nýr verkefnastjóri Græns iðngarðs á Bakka.
Karen Mist, nýr verkefnastjóri Græns iðngarðs á Bakka. Ljósmynd/Aðsend

Karen Mist Kristjánsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Græns iðngarðs á Bakka. Hún mun leiða vinnu við uppbyggingu starfseminnar í anda nýsköpunar, loftslagsmála og orkuskipta, en starfið er nýtt hjá Norðurþingi og Eimi, að því er fram kemur í tilkynningu.

Karen mun hefja störf 1. febrúar, starfsstöðin verður á Húsavík en hún mun vinna í teymi með Eimi.

„Karen er lífferlatækniverkfræðingur og hefur verið búsett í Danmörku síðustu misseri. Hún starfaði síðast sem sölustjóri hjá Alumichen þar sem verkefni hennar lutu meðal annars að búnaði og ferlum í tengslum við vatnshreinsun, endurnýtingu vatns, úrgangs og annarra auðlinda auk þess sem hún var teymisstjóri.

Karen hefur mikla reynslu af verkefnastjórnun og samvinnu með hagsmunaaðilum og fyrirtækjum í verkefnum m.a. í tengslum við uppbyggingu umhverfisvænna ferla og endurnýtingu hráefna,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK