Höfða mál gegn orkufyrirtækjum eftir að ellefu ára sonur þeirra lést Sylvía Hall skrifar 22. febrúar 2021 18:12 Cristian Pineda var ellefu ára gamall þegar hann lést, en fjölskyldan hafði flutt til Texas frá Hondúras fyrir tveimur árum síðan. Gofundme Fjölskylda hins ellefu ára gamla Cristian Pineda hefur höfðað skaðabótamál gegn orkufyrirtækjum í Texas eftir að sonur þeirra lést í vetrarstormunum sem hafa gengið yfir suðurríki Bandaríkjanna. Telja þau son sinn hafa dáið úr lungnabólgu, en niðurstöður krufningar liggja ekki fyrir.
Kuldakastið hefur leitt til minnst sjötíu dauðsfalla í Texas og nærliggjandi ríkjum og voru milljónir án rafmagns og vatns þegar kuldinn var hvað mestur, en yfirvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir það hversu laskað kerfið reyndist vera. Pineda bjó ásamt fjölskyldu sinni í hjólhýsi, en hann fannst látinn þar í síðustu viku. Móðir hans kom að honum en hún segir ekkert hafa amað að þann daginn, hann hafi verið hress og glaður áður en hún kom að honum látnum. Fjölskyldan hafi þó verið án hita og rafmagns í tvo daga og fór kuldinn mest niður í tólf gráðu frost á þeim tíma. Fjölskyldan krefst 100 milljóna Bandaríkjadala í skaðabætur frá orkufyrirtækjunum. Telur hún fyrirtækin hafa sýnt af sér vanrækslu með því að setja gróða framar lífi og heilsu fólks í ríkinu. Margir íbúar ríkisins standa nú frammi fyrir því að þurfa að greiða himinháa rafmagnsreikninga. Einhverjir íbúar hafa fengið reikninga fyrir allt að fimm þúsund dali, sem samsvarar tæpum 650 þúsund krónum, og er það fyrir eina viku. Lítið um er um lög og reglur þegar kemur að orkumarkaði Texas og bjóða orkusölur neytendum upp á að borga markaðsverð fyrir rafmagn, sem getur reynst fólki ódýrara þegar lítið álag er á kerfi ríkisins. Níu þúsund dalir var hámarksverð sem lög og reglur Texas leyfa og hélst verðið þar stóran hluta síðustu viku.
Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Fleiri fréttir Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Sjá meira