Endurmeta stærð hættusvæðis: Óvíst hvað veldur auknum hita og gróðurbruna Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 2. maí 2021 13:18 Vindátt var norðlæg í nótt en snérist í hæga austlæga um klukkan sex í morgun. Nokkrum klukkustundum síðar verður vart við reyk í suðvesturhlíðum Geldingadala. Þessa mynd tók ljósmyndari Vísis í Geldingadölum nú fyrir stundu. Vísir/Vilhelm Gríðarlegur hiti er nú við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Vart hefur orðið við gróðurelda og rýkur úr jörðu en óvíst er nákvæmlega til hvers megi rekja gróðureldana. Í ljósi breyttrar virkni er verið að endurmeta stærð hættusvæðis við gosstöðvarnar. „
Þetta heldur áfram. Hvað veldur þessum bruna, það geta verið mismunandi aðstæður og hlutir en við sjáum enga kviku koma upp eða neitt svoleiðis,“ segir Elísabet Árnadóttir, náttúruvársérfræðingur á vakt hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Ljóst sé að sinu eða gróðurbruni sé á svæðinu sem sjáist vel á vefmyndavélum. „Það er spurning hvort að hitinn sé að koma frá hraunjaðrinum eða hvort hann sé að koma með einhverri gjósku úr gígnum, það eru náttúrlega stórir strókar að koma upp öðru hverju, eða hvort það sé einhver hiti neðan frá. Við vitum það ekki,“ segir Elísabet. Þónokkurn reyk leggur frá gosstöðvunum.Vísir/Vilhelm Hún ætlar að ekki sé ráðlagt að vera á ferðinni á því svæði þar sem að reykurinn er stígur upp. „Ég veit ekki hvað almannavarnir hafa ráðlagt en ég held að það sé ekki æskilegt að vera þar í kring. Við höfum náttúrlega séð breytingar á gosinu og verðum bara að búast við því áfram,“ segir Elísabet. Ekki sé útilokað að hitinn og gróðurbruninn sé einhvers konar undanfari nýrrar sprungu, þó er ekki víst að svo sé. Grannt sé fylgst með stöðunni. Töluverðar breytingar hafi orðið á gosvirkni í nótt en þessi mynd af gosstróknum er tekin í dag.Vísir/Vilhelm Uppfært klukkan 14:02: Tilkynning var að berast frá Veðurstofu Íslands þar sem segir að töluverðar breytingar hafi orðið á gosvirkni í nótt. Í ljósi þessa sé verið að endurmeta stærð hættusvæðis við gosstöðvarnar. „Kvikustrókavirkni sem hafði verið nokkuð stöðug undanfarna daga tók að sveiflast með þeim hætti að hún dettur niður í um 3 mínútur og eykst svo með miklum krafti með hærri strókum en áður hafa sést og stendur yfir í um 10 mínútur. Þessir taktföstu púlsar hafa einkennt gosið frá því klukkan 1 í nótt. Vindátt var norðlæg í nótt en snérist í hæga austlæga um klukkan 6 í morgun. Nokkrum klukkustundum síðar verður vart við reyk í suðvesturhlíðum Geldingadals. Hugsanlega hefur heit gjóska úr gosstróknum borist með vindi suðvestur fyrir hraunbreiðuna um 300 metra leið og kveikt í og veldur nú sinubruna sem sést á vefmyndavél Rúv. Ekki er ljóst hvað veldur þessum breytingum í gosvirkni, en ekki er hægt að útiloka að breytingar hafi orðið í kvikuflæði, efnasamsetningu kviku/gass eða að breytingar hafi orðið í aðfærslukerfinu. Í ljósi þessarar breyttu virkni er verið að endurmeta stærð hættusvæðis við gosstöðvarnar,“ segir í tilkynningunni.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Erlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Innlent Fleiri fréttir Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sjá meira