Lækka bensínverð um 37 krónur á Akureyri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. september 2020 12:34 Akureyringar geta fengið bensín á rúmlega 185 krónur lítrann á einum stað í bænum, útjaðri hans norðanverðum. Fróðlegt verður að sjá hvort samkeppnisaðilar stökkvi til og bjóði upp á sambærilegt verð á einstaka stöð norðan heiða. Vísir/Vilhelm
Atlantsolía hefur lækkað verð á eldsneytislítranum á bensínstöðinni við Baldursnes á Akureyri til samræmis við verðstefnu sína í Kaplakrika og á Sprengisandi. Fyrirtækið fullyrðir að nú bjóði það upp á langódýrasta eldsneytislítrann á Norðurlandi. Bensínlítrinn á Baldursnesi kostar nú 185,5 krónur og dísillítrinn 181,5 krónu, sem er sama verð og á Sprengisandi og í Kaplakrika. Almennt listaverð félagsins er í dag 222,7 krónur á lítrann af bensíni og 210,8 krónur á dísillítrann. Allir viðskiptavinir fá sama lága eldsneytisverðið á Baldursnesi óháð fríðindakerfum, meðlimagjöldum eða öðrum afsláttarkjörum. Orkan býður upp á bensín á 185,4 krónur lítrann á Dalvegi og Reykjavíkurvegi á höfuðborgarsvæðinu. ÓB er með bensín á 185,5 krónur í Arnarsmára, Bæjarlind og Fjarðarkaupum. Bensín Costco er ódýrast á 182,9 krónur lítrann en félagsaðild þarf til kaupanna. Samanburð á bensínverði má finna til dæmis á Aurbjörg.is. „Bensínsprengjan okkar í Kaplakrika og á Sprengisandi hefur fengið frábærar viðtökur og breytti landslaginu á eldsneytismarkaðinum svo um munar neytendum til hagsbóta. Þó Atlantsolía sé eitt minnsta olíufélag landsins hefur fyrirtækið alltaf verið leiðandi í að sprengja upp eldsneytismarkaðinn og veita stóru olíurisunum aðhald í samkeppninni. Nú er komið að því að bjóða Akureyringum og nærsveitarmönnum þennan valkost, þ.e ódýrasta eldsneytisverðið og engin afsláttarkjör,“ segir Rakel Björg Guðmundsdóttir, markaðsstjóri Atlantsolíu, í tilkynningu. „Í kjölfar verðlækkunarinnar í Kaplakrika og á Sprengisandi hefur komið ákall um sambærileg verð frá viðskiptavinum okkar norðan heiða og við erum að bregðast við því með þessum hætti. Nú er hægt að ferðast á ódýrasta eldsneytinu okkar landshluta á milli.“
Bensín og olía Akureyri Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Fleiri fréttir Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Sjá meira