„Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. mars 2024 20:18 Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur vísir / hulda margrét Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga, var eðlilega súr og svekktur eftir eins stigs tap liðsins gegn Stjörnunni í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld.
Eftir tíu sigurleiki í röð í deild máttu Grindvíkingar þola tap með minnsta mun í Umhyggjuhöllinni í kvöd og vonbrigðin leyndu sér ekki hjá Jóhanni í viðtali eftir leik. „Tilfinningin er ekki góð. Við vorum langt frá okkar besta og eftir á að hyggja áttum við ekkert gott skilið út úr þessu,“ sagði Jóhann í leikslok. „Við vorum flatir og það vantaði allan kraft í okkur. Okkar einkenni náðu ekki að skína í gegn í kvöld, en það er líka bara hrós á Stjörnuna sem gerði vel. Þetta er bara tap og það er alltaf svekkjandi að tapa. En það þýðir ekkert að staldra við þetta. Við höldum bara áfram.“ Það heyrðist vel á leikmönnum og stuðningsfólki Grindavíkur að þeim fannst halla á sig í dómgæslunni í leik kvöldsins. Hann segir að sínir menn þurfi að hætta að einblína á hluti sem þeir geta ekki stjórnað. „Það er kannski eitt sem við þurfum að laga. Við erum að einbeita okkur aðeins of mikið af hlutum sem við einfaldlega stýrum ekki og það kann aldrei góðri lukku að stýra.“ Þá segir hann einnig hafa haft áhrif á leik sinna manna að DeAndre Kane var kominn í villuvandræði snemma í síðari hálfleik. „Auðvitað er vont að missa hann og allt það. Hann situr út allan þriðja leikhlutann, en þetta er allan tímann leikur þrátt fyrir það. Þeir fara aldrei meira en einhver 2-3 stig upp og allt það. Svo snýst þetta líka bara um einhverjar ákvaraðanatökur hjá okkur. Við erum með allavega tvær sendingar í seinni hálfleik í góðri stöðu þar sem við erum sex og átta stigum yfir, með boltann og höfum möguleika á að koma þessu í tveggja stafa tölu en grýtum boltanum bara frá okkur.“ „Maður horfði á bikarhelgina og það eru greinilega einhverjar áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar í þessu. Við ætluðum eitthvað að reyna að dempa tempóið hvað það varðar, en við þurfum bara að fara aftur í grunninn og fara eins nálægt línunni og hægt er. Það er okkar leikur og við þurfum að finna það aftur.“ Að lokum segir Jóhann það þó ekki skipta öllu máli þó tíu leikja sigurganga liðsins sé á enda. Nú þurfi Grindvíkingar bara að koma sér aftur á hestinn fyrir úrslitakeppnina. „Þetta er enginn heimsendir. Við bara töpuðum í kvöld og nú þurfum við bara að koma saman og nýta tíman vel fyrir næsta fimmtudag. Við þurfum bara að vinna Haukana og koma sterkir inn í þessa blessuðu úrslitakeppni þar sem allir vilja vera. Við ætlum okkur langt þar.“ „Eins og ég segir þá er þetta enginn heimsendir og við sleikjum sárin í kvöld. Svo er það bara áfram gakk,“ sagði Jóhann að lokum.
Subway-deild karla UMF Grindavík Stjarnan Tengdar fréttir Leik lokið: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Stjarnan vann Grindavík í háspennuleik í næstsíðustu umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Sigur Stjörnunnar þýðir að Garðbæingar eiga enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Grindavík hafði fyrir leikinn unnið 10 leiki í röð. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 28. mars 2024 20:00 Mest lesið „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Fury í ham og ýtti Usyk í vigtuninni Sport Fleiri fréttir Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Sjá meira
Leik lokið: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Stjarnan vann Grindavík í háspennuleik í næstsíðustu umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Sigur Stjörnunnar þýðir að Garðbæingar eiga enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Grindavík hafði fyrir leikinn unnið 10 leiki í röð. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 28. mars 2024 20:00