Á tvö þúsund vínilplötur

Kristján Hafsteinsson á stórt plötusafn.
Kristján Hafsteinsson á stórt plötusafn. Ljósmynd/Hari

Kristján Hafsteinsson sinnir viðskiptaþróun innviða hjá Orgio á daginn en tónlistinni á kvöldin. Hann hefur verið í alls konar hljómsveitum í gegnum tíðina en er einna stoltastur af myndarlegu vínilplötusafni. 

„Ég hef safnað vínilplötum frá því ég var barn. Ætli ég eigi ekki um tvö þúsund plötur. Ég keypti mínar fyrstu plötur 1987, þá sjö ára gamall. Það voru plöturnar Appetite for Destruction með Guns N'Roses og Off the Wall með Michael Jackson,“ segir Kristján. 

„Það eru margir í uppáhaldi en ég safna mest soul, R&B, rappi og djassi ásamt vel völdu rokk- og poppstöffi. Þetta er allt frá Stevie Wonder og Erykuh Badu yfir í Coltrane og Miles yfir í Bítlana, Stones og Bowie yfir í Pharcyde og Biggie yfir í Steely Dan og Cream svo það er óhætt að segja að það sé einhver fjölbreytni.“

Kristján er líka að búa til eigin tónlist sem hann segir mjög skemmtilegt. „Ég spila aðallega á raf- og kontrabassa. Ég hef verið í alls konar hljómsveitum. Núna eru til dæmis þær sveitir sem eru virkastar Fox Trains Safari, House of deLay og Leather Hammer. Tónlistin gefur manni eitthvað hvort sem maður er að skapa eða njóta,“ segir hann og brosir.

Þegar tónlistin er ekki efst í huga er það vinnan. „Ég fókusera á mjög sértæk verkefni. Ég er mest að skoða tækifæri tengt HPC (High Performance Computing) þar sem afkastamiklar tölvur eru notaðar sem reikniafl. Ég er líka að vinna við gagnaský Origo (Aurora Cloud) og skoða tækifæri tengd því. Það er mikið í gangi í innviðamálum Origo og margt spennandi þar. Mest af mínum tíma fer í að skoða tækifæri erlendis en það er mikilvægt að hafa rétta nálgun varðandi tækifærin og markaðinn. Þetta er hreinlega ótrúlega skemmtilegt, ég vinn mest með ótrúlega öflugu teymi hjá honum Arnþóri Birni [Reynissyni] og það eru hálfgerð forréttindi að fá að taka þátt í að skapa tækifæri hjá fyrirtæki eins og Origo.“

Kristján hefur verið í mörgum hljómsveitum.
Kristján hefur verið í mörgum hljómsveitum. Ljósmynd/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.