Innlent

Nýr Herjólfur stórbætti nýtingu Landeyjahafnar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Nýi Herjólfur hefur aukið nýtingu Landeyjahafnar úr 57 prósentum upp í 83 prósent.
Nýi Herjólfur hefur aukið nýtingu Landeyjahafnar úr 57 prósentum upp í 83 prósent. Egill Aðalsteinsson

Nýi Herjólfur hefur 45 prósentum oftar getað nýtt Landeyjahöfn undanfarna tvo vetur heldur en sá gamli. Tilkoma nýja skipsins á siglingaleiðinni til og frá Vestmannaeyjum hefur þannig aukið nýtingu Landeyjahafnar úr 57 prósentum upp í 83 prósent.

Landeyjahöfn var tekin í notkun sumarið 2010 en hugmyndin upphaflega gerði ráð fyrir nýju skipi samtímis enda var höfnin hönnuð fyrir ferju sem risti grynnra en sú gamla.

„Þessi er náttúrlega grunnristari og ræður betur við aðstæður. Við getum siglt í verri aðstæðum heldur en var á gamla skipinu,“ segir Brynjar Smári Unnarsson, skipstjóri á Herjólfi, í fréttum Stöðvar 2.

Brynjar Smári Unnarsson, skipstjóri á Herjólfi.Egill Aðalsteinsson

Hrunið frestaði smíði nýrrar ferju og í níu ár liðu samgöngur við Vestmannaeyjar fyrir að hafa ekki skip sem hentaði höfninni.

„Ég hugsa að þetta hafi verið Þorlákshöfn hálft árið, eins og þetta var með gamla skipið. En núna eru þetta kannski fimmtíu dagar á ári,“ segir skipstjórinn.

Tölurnar sem Vegagerðin hefur tekið saman að ósk fréttastofu sýna að gamli Herjólfur fór 57 prósent daga í Landeyjahöfn. Nýi Herjólfur hefur á hinn bóginn hækkað þetta hlutfall upp í 83 prósent frá því hann var tekinn í notkun sumarið 2019.

Nýi Herjólfur siglir inn í Landeyjahöfn.Egill Aðalsteinsson

Þannig hefur nýting Landeyjahafnar aukist verulega með tilkomu nýju ferjunnar eða um 45 prósent. Þótt Brynjar skipstjóri segi að enn megi bæta höfnina segir hann Eyjamenn káta með nýja skipið.

„Ég held að langflestir séu rosalega ánægðir með þetta. Þetta er himinn og haf miðað við það sem var.“

Og það þykir bæði þægilegra og umhverfisvænna.

„Og þetta er gott sjóskip. Ég held að allir séu sammála um það.“

-Það heyrist eiginlega ekkert í því?

„Það heyrist ekki neitt. Þetta er rafmagns.“

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Hér má sjá beina útsendingu frá vígsludegi Landeyjahafnar þann 20. júlí árið 2010:

Í þættinum Ísland í dag var rætt við forystumenn Rangárþings eystra um höfnina:


Tengdar fréttir

Bíðum eins og börn á jólum eftir nýjum Herjólfi

Ferðamálasamtök Vestmannaeyja telja mikilvægt að nýr Herjólfur verði afhentur um mánaðamótin vegna fjölgunar erlendra ferðamanna á þessum árstíma. Talsmaður samtakanna segir þó mikilvægast að geta tekið Landeyjahöfn í notkun sem fyrst.

Vilja göng milli lands og Eyja

Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi feli samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að skipa starfshóp sem kanni fýsileika á gerð ganga á milli Heimaeyjar og Kross í Landeyjum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×