Fimm hlaup búin og sjö eftir Sylvía Hall skrifar 6. mars 2021 22:57 Bjartur Norðfjörð verður hálfnaður með áskorunina rétt eftir miðnætti. Vísir/Vilhelm Bjartur Norðfjörð hefur nú hlaupið rúma sex kílómetra fimm sinnum frá því klukkan fjögur í nótt og á eftir að hlaupa sjö sinnum til viðbótar. Sjálfur segist hann vera nokkuð góður eins og er, en mesta áskorunin sé að koma sér aftur af stað í næsta hlaup.
Yfir helgina mun Bjartur hlaupa rúma 77 kílómetra til styrktar vini sínum Brandi Karlssyni, en Brandur hefur verið lamaður fyrir neðan háls í um áratug. Söfnunarféð verður nýtt í baráttu fyrir bættu aðgengi fatlaðra. Þegar blaðamaður náði tali af Bjarti rétt fyrir klukkan níu í kvöld hafði hann nýlokið sínu fimmta hlaupi. Hann segir viðbrögðin hafa komið skemmtilega á óvart, margir hafi sett sig í samband við hann og vinir og vandamenn tekið spretti með honum. Þakklátastur er hann þó fyrir það hversu margir hafa lagt söfnuninni lið, enda sé málefnið mikilvægt. „Það er fullt af fólki búið að heyra í mér og hvetja mig áfram. Svo fékk ég nokkra félaga mína til að koma að hlaupa með mér í dag og kærastan mín kom á eftir mér á hjóli. Núna var ég að hlaupa með foreldrum mínum, svo þetta er búið að vera æðislegt í dag.“ Mikilvægast að vekja athygli á málstaðnum Líkt og áður sagði var fyrsta hlaupið klukkan fjögur í nótt og hefur hann hlaupið á fjögurra klukkustunda fresti síðan þá. Bjartur segir þetta þekkta áskorun meðal hlaupara og honum hafi þótt hún spennandi, en það sé enn ánægjulegra að geta gert þetta og í leiðinni vakið athygli á mikilvægi þess að bæta aðgengi fyrir fatlaða. „Þetta er orðið miklu stærra en ég bjóst við að þetta myndi verða og mér finnst það magnað. Það sem þetta verkefni snýst um er að vekja athygli á þessu.“ Þrátt fyrir að hafa eytt deginum í hlaup segist Bjartur vera ferskur og til í síðustu sjö. Það sé erfitt að koma sér af stað þegar líkaminn sé farinn að slaka á og þá einna helst um miðja nótt. „Það er ekkert djók að vakna klukkan tuttugu mínútur í fjögur og rífa sig á fætur og fara að hlaupa. En það er fínt að taka daginn og ég var allavega heppinn með veður í dag.“ Þeir sem vilja geta lagt söfnuninni lið með því að leggja inn á reikning Brands, rknr: 515-14-412345, kennitala: 0201823779. Aur og Kass: 7700221. Þá er hægt að fylgjast með Bjarti á hlaupum um helgina á Instagram og Facebook. Hér að neðan má horfa á viðtal við Bjart og Brand úr kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.
Mannréttindi Hlaup Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Halla þótti standa sig best Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Innlent Fleiri fréttir Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Sjá meira