Innlent

Helmingur þingmanna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks vill þjóðaratkvæðagreiðslu

Heimir Már Pétursson skrifar

Helmingur þingmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, bróðurpartur þingmanna Miðflokksins, báðir þingmenn Flokks fólksins og einn þingmaður Vinstri grænna hafa lagt fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar.

Þetta er í fimmta skipti sem tillaga sem þessi er lögð fram á Alþingi, nú síðast á nýliðnum vetri en aldrei náð fram að ganga. Tæpt ár er liðið frá því Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri skrifuðu undir samkomulag um rannsóknir á möguleikum á nýjum innanlandsflugvelli í Hvassahrauni. Samkomulagið byggði á skýrslu stýrihóps um framtíðarskipan flugvallarmála á suðvesturhorni landsins.

Hér sést dreifing þingmanna eftir flokkum og kjördæmum sem skrifa upp á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar.Grafík/HÞ

Athygli vekur að helmingur þingmanna stjórnarflokkanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks skrifa undir tillöguna.

Þingmennirnir tuttugu og fjórir vilja að þjóðin verði spurð:

Foto: HÞ

Flestir koma þingmennirnir úr Suðvesturkjördæmi eða sex. Fimm koma úr Norðausturkjördæmi og annar eins fjöldi úr Norðvesturkjördæmi, fjórir koma úr suðurkjördæmi og fjórir úr Reykjavíkurkjördæmunum, þar sem umræddur flugvöllur er staðsettur, þar af einn stjórnarþingmaður úr Sjálfstæðisflokknum.

Átta af sextán þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, fjórir af átta Framsóknarflokksins, níu af ellefu þingmönnum Miðflokksins, báðir þingmenn Flokks fólksins og einn af níu þingmönnum Vinstri grænna vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar.Grafík/HÞ

Samkvæmt samkomulagi samgönguráðherra og borgarstjóra frá 28. nóvember í fyrra hefur verið skipaður stýrihópur til að fylgjast með rannsóknum á kostum Hvassahrauns fyrir nýjan flugvöll. Borgini og ríkið skipta méð sér 200 milljóna framlagi til rannsóknanna. Stefnt er að því að taka ákvörðun hvort af byggingu flugvallarins verði fyrir lok árs 2024.


Tengdar fréttir

Segir nýja byggð í Skerjafirði atlögu gagnvart flugvellinum

Áform borgarstjórnarmeirihlutans um nýja byggð í Skerjafirði, sem kynnt verða á morgun, eru atlaga að Reykjavíkurflugvelli og skemmdarverk af stærstu gráðu, að mati Vigdísar Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins.

Reykjavíkurflugvöllur óáreittur næstu 15-20 árin

Reykjavíkurflugvöllur mun áfram þjóna innanlandsflugi, æfinga- og kennsluflugi næstu fimmtán til tuttugu árin en á næstu tveimur árum á að liggja fyrir hvort aðstæður leyfi uppbyggingu nýs innanlandsflugvallar í Hvassahrauni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×