Hrósuðu mæðgunum: „Örugglega að drepast í líkamanum“ Sindri Sverrisson skrifar 25. janúar 2023 13:30 Kristín Guðmundsdóttir og Embla Steindórsdóttir léku saman með liði HK gegn Val um síðustu helgi. vísir/Ívar Fannar Mæðgurnar Kristín Guðmundsdóttir og Embla Steindórsdóttir skoruðu samtals tíu mörk fyrir HK í leik gegn Val í Olís-deildinni í handbolta um síðustu helgi. Þær fengu sviðsljósið í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport á mánudaginn.
Kristín er þrautreynd handboltakona og var afar sigursæl með liði Vals. Hún er orðin 44 ára en skórnir eru ekki enn farnir upp í hillu og hún hefur því náð að spila með hinni 17 ára Emblu, dóttur sinni. „Þetta er sjaldgæft í handbolta. Ég þekki þetta sjálfur. Ég var nógu gamall til að spila með pabba [Guðjóni Árnasyni] á sínum tíma, en ég var náttúrulega bara ekki nógu góður svo það gekk ekki, því miður. Þetta er algjörlega geggjað, og kraftur í Kristínu. Horfandi á leikinn hefði maður ekki giskað á að hún væri orðin þó þetta gömul,“ sagði Árni Stefán Guðjónsson í Seinni bylgjunni en brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Sigurlaug Rúnarsdóttir, sem ásamt Árna var gestur Svövu Kristínar Gretarsdóttur í þættinum, er yngri en Kristín og kvaðst fagna því að sjá Kristínu spila sitt 29. keppnistímabil í meistaraflokki: „Þetta eru auðvitað átök en ég fagna því að konur séu að spila lengur. Mig hefði aldrei órað fyrir því þegar ég var að byrja í handbolta að þetta væri búið að lengjast svona mikið. Konur hættu almennt mikið fyrr í íþróttum en karlar. Þetta er því frábært. Hún er hins vegar ekki búin að spila samfellt þannig að hún er örugglega að drepast í líkamanum, á meðan að til dæmis Hanna Guðrún [Stefánsdóttir, Stjörnunni] hefur spilað samfleytt. En Kristín er ótrúlega seig og kann auðvitað handbolta, ekki spurning. En þetta er örugglega erfitt á köflum,“ sagði Sigurlaug. Klippa: Seinni bylgjan - Mæðgurnar í HK Kristín sagðist í viðtali við Svövu ekki ætla að stökkva frá sökkvandi skipi, eflaust sár yfir því að leikmenn kjósi að fara frá HK eins og Sara Katrín Gunnarsdóttir gerði á dögunum þegar hún fór að láni til Fram. „Ég veit svo sem ekkert af hverju Sara fór. Kannski eru þetta pínu ósanngjörn ummæli,“ sagði Sigurlaug. „Hún [Kristín] á náttúrulega dóttur í liðinu og er að reyna að hjálpa. En það eru alltaf tvær hliðar á öllum málum. Það hlýtur að vera góð ástæða fyrir því að Sara fór,“ sagði Sigurlaug. Umræðuna í heild, sem og viðtalið við mæðgurnar, má sjá hér að ofan.
Olís-deild kvenna HK Seinni bylgjan Mest lesið Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Fleiri fréttir „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Sjá meira