Fleiri útgerðir birta listana

Ísfélag Vestmannaeyja.
Ísfélag Vestmannaeyja. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Útgerðirnar Ísfélag Vestmannaeyja og Fisk Seafood hafa báðar birt á heimasíðum sínum lista yfir fjárhagslegar upplýsingar.

Greint var frá því á 200 mílum á dögunum að Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefði birt lista yfir fjár­fest­ing­ar félagsins í at­vinnu­líf­inu, þá sér­stak­lega fé­lög­um sem ekki hafa út­gerð með hönd­um á síðustu 10 árum í samræmi við skýrslubeiðni Hönnu Katrínar Friðriksson, þingmanns Viðreisnar. 

Nú hafa Ísfélagið og Fisk gert slíkt hið sama. Auk þeirra eru tvö stór sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi þegar á markaði í Kauphöll Íslands, Brim og Síldarvinnslan, og lúta þar af leiðandi ríkari kröfum um gagnsæi varðandi fjárfestingar. 

Ekkert að fela 

„Þetta er náttúrlega allt aðgengilegt, ef fólk nennir að skoða það þá hefur fólk alltaf getað séð þetta á heimasíðu skattsins. Þetta er sambærilegt við það sem Vinnslustöðin birti og það sem skatturinn mun birta í skýrslu sinni,“ segir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja, í samtali við 200 mílur um birtinguna.

Hann segir útgerðir ekki hafa talað sig saman um birtinguna. 

„Þetta eru engin leyndarmál. Fyrirtækjum var bent á að þetta væri möguleiki og svo leiddi eitt af öðru. Þegar umræðan er farin að snúast um hvort skatturinn sitji á þessu eða ekki er spurningin orðin pólitísk en ekki til upplýsingar,“ segir Stefán.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 416,65 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 324,83 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,07 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 215,02 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Beta Sara ÍS 42 Handfæri
Þorskur 759 kg
Samtals 759 kg
16.5.24 Dagrún HU 121 Handfæri
Þorskur 797 kg
Samtals 797 kg
16.5.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 1.471 kg
Samtals 1.471 kg
16.5.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.010 kg
Steinbítur 2.502 kg
Ýsa 1.447 kg
Hlýri 162 kg
Ufsi 54 kg
Skarkoli 26 kg
Langa 24 kg
Karfi 12 kg
Keila 7 kg
Samtals 12.244 kg

Skoða allar landanir »