Arsenal á eftir leikmanninum efnilega

Jorrel Hato í leik með Ajax.
Jorrel Hato í leik með Ajax. AFP/Bart Stoutjesdijk

Enska knattspyrnufélagið Arsenal vill fá til liðs við sig Hollendinginn unga Jorrel Hato. 

Hato er átján ára varnarmaður sem hefur byrjað alla 32 leiki Ajax í hollensku deildinni á yfirstandandi tímabili. 

Samkvæmt hinum áreiðanlega Fabrizio Romano leggur Arsenal mikið kapp við að fá leikmanninn í sínar raðir í sumar til að styrkja öftustu línu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert