fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
433Sport

Þorvaldur sleppti rúmum tveimur mínútum af uppbótartíma í Vesturbænum í gær

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 20. september 2021 10:10

KR-völlur hefur oft verið fallegri. ©AntonBrink © 365 ehf / Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Uppgefinn uppbótatíma í leik KR og Víkings í gær voru 5 mínútur. Þorvaldur Árnason dómari leiksins hafði ákveðið að fimm mínútur yrðu til viðbótar eftir venjulegan leiktíma en þær voru þó ekki kláraðar. KR tók á móti Víkingum á Meistaravöllum í efstu deild karla í gær.. Kjartan Henry Finnbogason kom KR yfir strax á 9. mínútu með skalla eftir frábæran bolta frá Kennie Chopart.

Atli Barkarson jafnaði metin stuttu síðar með frábæru skoti. Víkingar sóttu stíft það sem eftir lifði leiks og uppskáru á 87. mínútu er Helgi Guðjónsson kom knettinum í netið.

Ótrúleg dramatík var undir lok leiks en KR fékk vítaspyrnu og þá varð allt brjálað og Kjartan Henry Finnbogason sá rautt. Pálmi Rafn tók spyrnuna en lét Ingvar Jónsson verja frá sér og mikil fagnaðarlæti brutust út hjá Víkingum. Víkingur er á toppi deildarinnar fyrir lokaumferðina.

Þorvaldur stöðvaði eftir 92:30, eftir það var lítill fótbolti spilaður enda fór allt í hund og kött og að lokum var vítaspyrna dæmd. Hins vegar hefði leikurinn átt að standa mun lengur miðað við uppgefinn uppbótatíma á Meistaravöllum.

Atburðarrásin:
92:30 – Klafs í teig og allt verður vitlaust
96:25 – Pálmi tekur vítaspyrnuna
96:30 – Leikur stöðvar vegna stuðningsmanna Víkings
97:23 – Leikur hefst aftur
97:38 – Þorvaldur flautar til leiksloka

Bolti í leik í 2:50 af uppgefnum 5 mínútum

Af uppgefnum 5 mínútum af Þorvaldi og hans teymi voru aðeins spilaðar tæpar 3 mínútur en ekki þær fimm sem gefnar voru upp.

Sigur Víkinga kom liðinu í toppsætið en á sama tíma tapaði Breiðablik gegn FH og missti af toppsætinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Nú líklegast að hann haldi norður í sumar

Nú líklegast að hann haldi norður í sumar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Skrifar undir nýjan samning eftir frábært tímabil

Skrifar undir nýjan samning eftir frábært tímabil
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ten Hag í sögubækurnar með tapinu í gær

Ten Hag í sögubækurnar með tapinu í gær
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hefði dugað til að skáka Ferguson í sjö tilfellum

Hefði dugað til að skáka Ferguson í sjö tilfellum