Utanríkisráðherra Taívan, Joseph Wu, kveðst bjartsýnn á að samkomulag náist um fríverslunarsamning milli Bandaríkjanna og Taívan. Unnið hefur verið að samkomulagi milli ríkjanna undanfarin ár.
Stjórn Donald Trumps Bandaríkjaforseta hefur átt í viðræðunum en utanríkisráðherra Asíulandsins telur að þrátt fyrir stjórnarskipti verði hægt að koma á samkomulagi. Slíkt muni þó betur koma í ljós við embættisskiptin í janúar.
Í ágústmánuði dró Taívan úr takmörkunum á innflutningi nauta- og svínakjöts frá Bandaríkjunum. Takmarkanirnar höfðu áður verið mikil hindrun í viðræðum landanna.
Á ráðstefnu er haldin var í höfuðborg Taívan, Tapei, greindi utanríkisráðherra landsins frá stuðningi við minni takmarkanir á umræddan innflutning. Eru vonir nú bundnar við að samningar náist loks.