Segir smitin ekki dæmi um vanrækslu heldur árvekni starfsfólks Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. janúar 2021 10:39 Már Kristjánsson er yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans og formaður farsóttarnefndar. Vísir/Vilhelm Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans og formaður farsóttarnefndar, segir að það taki um sólarhring að átta sig nákvæmlega á stöðunni eftir að smit greindist á blóð- og krabbameinsdeild í gærkvöldi. Hann segir stöðuna býsna góða. „
Við lokuðum deildinni fyrir innlögnum og erum búin að flytja sjúklinginn inn á smitsjúkdómadeild í einangrun. Nú höfum við stofnað til skimunar á öllu starfsfólkinu sem hefur komið að þessum einstaklingi og sjúklingum á deildinni. Niðurstöður þeirrar skimunar sennilega ekki fyrr en um þrjúleytið í dag,“ segir Már í samtali við fréttastofu. Tvö smit hafa komið upp á Landspítalanum í þessari viku; hitt greindist á þriðjudag á hjartadeild en í því tilfelli var smitið gamalt. Aðspurður hvort eitthvað megi leggja út af því að það komi upp tvö smit á spítalanum með svo skömmu millibili segir Már svo ekki vera. „Ekki annað en það að fólk er árvökult og við höfum ákveðnar vinnureglur varðandi flutning til dæmis á milli þjónustustiga í okkar kerfi. Svo er þetta líka klínískt mat, eins og í dæmi þessa einstaklings sem hér um ræðir þá er þetta klínískt mat sem leiðir til þess að þetta er greint. En þetta eru tveir óháðir atburðir og með sitthvoru laginu, þeir eru alls ótengdir og eru í raun ekki neinir palladómar eða neitt dæmi um einhverja vanrækslu eða eitthvað slíkt heldur meira dæmi um árvekni starfsfólksins að greina þetta,“ segir Már. Hann segir að vel hafi gengið að vinna úr smitinu á krabbameinsdeildinni. Viðbrögð við lokun deildar, skimun sjúklinga og starfsfólks hafi verið fumlaus. „Það tekur okkur sólarhring að átta okkur nákvæmlega á stöðu máls. Alveg eins og með hjartadeildina þá lá fyrir á innan við sólarhring hvers kyns var. Við erum með sama viðbragðið á þessari krabbameinsdeild. Hluti fólksins er í sóttkví, þeir sem taldir eru hafa verið útsettir á meðan við bíðum eftir niðurstöðunum og svo munum við taka afstöðu í ljósi þeirra gagna sem berast okkur næstu klukkutímana,“ segir Már. Sjúkrahúsið á Ísafirði er komið á hættustig vegna smitsins sem greindist á Landspítalanum í gær þar sem sjúklingurinn hafði á síðustu dögum notið þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þrír starfsmenn á sjúkrahúsinu á Ísafirði eru í sóttkví og þrír til viðbótar í úrvinnslusóttkví.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Fleiri fréttir Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Komi ekki á óvart skapi ríkið aftur skaðabótaskyldu gagnvart Hvali hf. Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Sjá meira