Ný stjórn Miðflokksfélags Suðurkjördæmis

Nýkjörin stjórn Miðflokksfélags Suðurkjördæmis. Á myndina vantar Davíð Brár Unnarsson.
Nýkjörin stjórn Miðflokksfélags Suðurkjördæmis. Á myndina vantar Davíð Brár Unnarsson. Ljósmynd/Miðflokkurinn

Ný stjórn var kjörin í Miðflokksfélagi Suðurlands síðasta laugardag og var fundurinn haldinn á zoom. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Nýr formaður er Óskar Herbert Þórmundsson en aðrir í stjórn eru Sigrún Bates, Davíð Brár Unnarsson, Sverrir Ómar Victorsson, Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir, Guðrún Svana Sigurjónsdóttir og Tómas Ellert Tómasson.           

Þá voru Magnús Haraldsson, Margrét Sigríður Jónsdóttir og Ragnar Anthony Antonsson Gambrell kjörin varamenn. 

Í kjörstjórn sitja Ásdís Bjarnadóttir, Óskar Herbert Þórmundsson og  Guðmundur Kristinn Jónsson. Varamaður er Egill Sigurðsson. 

Á næstu vikum halda öll kjördæmafélög sína aðalfundi og  sjá yfirlit um þá fundi á heimasíðu flokksins xm.is. 

Segir þá að lokum í tilkynningunni að mikill hugur  í miðflokksfólki um land allt og  undirbúningur kosninganna í haust  hafinn í öllum kjördæmum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert