Emmsjé Gauti greinir frá því á twitter að hann sé bókaður á fótboltamótið Rey Cup nú um helgina. Þrátt fyrir að smitum fari fjölgandi í samfélaginu stendur til að halda mótið. Um tvö þúsund keppendur eru skráðir til leiks, sem gerir mótið að því stærsta í sögu Rey Cup.
Smitum fer fjölgandi og ég er bókaður á Rey Cup um helgina. Vonandi verður gaman.
— Emmsjé (@emmsjegauti) July 20, 2021
Tístið hefur vakið sérstaka athygli sökum þess að fyrir ári síðan vakti annað tíst Gauta um Rey Cup enn meiri athygli, þar sem hann vísaði til þess að smit hefði komið upp á Rey Cup í fyrra, en nokkrum vikum síðar fór faraldurinn á siglingu á ný:
Eins gott að það hafi verið gaman á Rey Cup litlu skítarnir ykkar.
— Emmsjé (@emmsjegauti) July 30, 2020
Þó er ekki talið að smitið á Rey Cup hafi verið kveikjan að þeirri bylgju.
Til stendur að halda mótið aftur í ár og það er því næsta víst að Emmsjé Gauti muni koma til með að skemmta „litlum skítum“ um helgina.
Tíst Gauta vakti eins og áður sagði töluverða athygli og hafa margir fært það í stílinn og nýtt við önnur tilefni, til að mynda þegar smitum hefur skyndilega farið fjölgandi. mbl.is tók saman nokkur dæmi þess efnis.
Vonandi var gaman að þurfa ekki að framvísa neikvæðu prófi við komuna til landsins, litlu skítarnir ykkar https://t.co/E4yRwG0H2u
— Reyn Alpha (@haframjolk) July 20, 2021
Eins gott að það hafi verið gaman á djamminu litlu skítarnir ykkar.
— Ólafur Nils Sigurðsson (@olafurns) September 19, 2020
Vonandi var gaman í Ásmundarsal litlu skítarnir ykkar
— Jóna Þ. Pétursdóttir (@jonapeturs) December 24, 2020
Vonandi var gaman í hópslag litlu skítarnir ykkar pic.twitter.com/lk2ipUjrvZ
— stefan.vigfusson@gmail.com (@SVigfusson) June 28, 2021
Ég vona að það verði gaman í himnaríki litlu skítarnir ykkar pic.twitter.com/EHGflQvOJD
— Sigurþór Einarsson 🇵🇸 (@Sigurthore) December 25, 2020