Fyrrverandi forseti Frakklands dæmdur fyrir spillingu Samúel Karl Ólason skrifar 1. mars 2021 14:00 Nikolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands. EPA/CHRISTOPHE PETIT TESSON Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar vegna spillingar. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að reyna að múta dómara í tengslum við rannsókn hvort hann hafi tekið við ólöglegri peningasendingu frá Liliane Bettencourt fyrir forsetaframboð hans árið 2007.
Tvö ár af þremur eru skilorðsbundin. Samkvæmt frétt France24 er ólíklegt að Sarkozy muni sitja í fangelsi vegna dómsins. Það gerist sjaldan í Frakklandi nema fangar séu dæmdir til minnst tveggja ára fangelsisvistar. Forsetinn fyrrverandi á rétt á því að biðja um að afplána dóm sinn í stofufangelsi. Auk Sarkozy fengu lögmaðurinn Thierry Herzog og dómarinn Gilbert Azibert sama dóm. Sarkozy og Herzog voru fundnir sekir um að að múta Azibert, sem sendi þeim upplýsingar um rannsókn á greiðslum sem framboðs Sarkozy fékk frá hinni auðugu Liliane Bettencourt, erfingja franska L'Oréal veldisins. Málið byggði á upptökum af samtölum Sarkozy og Herzog. Á einni upptöku sagðist Sarkozy ætla að útvega Azibert starf í Mónakó, sem hann gerði að vísu aldrei. Frönsk lög gera samt ekki greinarmun á tilraun til mútugreiðslna og mútugreiðslum. Sarkozy, sem var forseti frá 2007 til 2012, hefur þvertekið fyrir ásakanirnar og segist vera fórnarlamb nornaveiða saksóknara, samkvæmt frétt fréttaveitunnar Reuters. Hann hefur tíu daga til að áfrýja niðurstöðunni. Sarkozy er annar fyrrverandi forseti Frakklands sem er dæmdur fyrir spillingu á undanförnum árum. Jacques Chirac var dæmdur árið 2011. Rannsókn leiddi að endingu í ljós að Sarkozy hefði ekki brotið lög varðandi greiðslurnar frá Bettencourt. Hann er þó enn til rannsóknar vegna greiðslna sem hann er sakður um að hafa þegið frá Muamma Gaddafí, fyrrverandi einræðisherra Líbíu.
Frakkland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent „Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Fleiri fréttir Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Sjá meira