Sómi að frammistöðunni

Teitur Örn Einarsson kom sterkur inn í íslenska liðið undir …
Teitur Örn Einarsson kom sterkur inn í íslenska liðið undir lokin í gærkvöld og skoraði tvö mörk. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Einhvern tíma hefðu það þótt sérstök tíðindi að Ísland mætti einungis með fjórtán leikmenn í leik gegn Dönum í milliriðli á stórmóti þegar heimilt er að tefla fram sextán. Það gerðist á EM í Búdapest í gær. Þótt íslensku landsliðsmennirnir séu margir hverjir eldsnöggir þá tókst kórónuveirunni skæðu engu að síður að ná í skottið á þeim.

Ekki þarf endilega að eyða miklu plássi hér til að útskýra fréttir gærdagsins og miðvikudagskvöldsins en uppstilling íslenska liðsins gerbreyttist vegna forfalla. Á innan við sólarhring var tilkynnt um sex smit í íslenska landsliðinu. Og það var ekki eins og þar væru Pétur og Páll á ferðinni heldur Aron fyrirliði og Björgvin Páll. Markaskorarinn Bjarki Már, Gísli Þorgeir sem leikið hefur við hvern sinn fingur á mótinu og varnarjaxlinn Elvar Örn. Sá sjötti var Ólafur Guðmunds og þá má segja að fjórir reyndustu menn landsliðsins hafi allir farið í einangrun á einu bretti. Menn hafa kveinkað sér af minna tilefni en þessu í íþróttasögunni.

Mikill sómi var að framgöngu Íslendinga í leiknum í ljósi stöðunnar og hversu lítinn tíma menn höfðu til að bregðast við. Danmörk sigraði 28:24 og náði í bæði stigin en náði aldrei að hrista íslenska liðið af sér. Eru Danir þó heimsmeistarar í íþróttinni, glíma við fá forföll og fengu tveggja daga hvíld á milli leikja. 

Greinin í heild sinni er í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert