Spænskir hægrimenn fýldir yfir gagnrýni á Kólumbus Kjartan Kjartansson skrifar 12. október 2021 14:58 Spænski fasistar hylla þá sem þeir kalla „hetjur“ landvinninga Spánar í Barcelona í dag. Í dag er minnst komu Kristófers Kólumbusar til „nýja heimsins“ árið 1492. Vísir/EPA Kergja ríkir nú á meðal spænskra hægrimanna vegna gagnrýni á nýlendustefnu þeirra og Kristófer Kólumbus. Þeir eru einnig ósáttir við að Bandaríkjaforseti hafi viðurkennt voðaverk gegn frumbyggjum Ameríkanna.
Umræðan um landvinninga Evrópumanna í Ameríkunum blossar árlega upp í kringum Kólumbusardaginn sem er meðal annars haldinn hátíðlega á Spáni og Bandaríkjunum. Viðurkenning Joes Biden Bandaríkjaforseta á að frumbyggjar hafi mátt þola þjáningar með komu evrópsku landvinningamannanna fór sérstaklega fyrir brjóstið á íhaldsmönnum í báðum löndum. Biden hvatti landa sína til þess að sópa því hvernig komið var fram við frumbyggja undir teppið. Lýsti hann því jafnframt yfir að 11. október yrði héðan í frá bæði dagur Kólumbusar og frumbyggjaþjóða, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Pablo Casado, leiðtogi Lýðflokksins, stærsta hægriflokks Spánar, segir nýlendustefnu Spánverja í Ameríkunum mikilvægustu atburði mannkynssögunnar á eftir Rómarveldi. „Þarf spænska konungsríkið að biðjast afsökunar vegna þess að fyrir fimm öldum fann það nýja heiminn, virti þau sem voru þar, reisti háskóla, skapaði velsæld, byggði heilu borgirnar? Það held ég nú ekki,“ sagði Casado í myndbandi sem hann birti á Twitter og skautaði nokkuð létt fram hjá slátrun og kúgun spænskra landvinningamanna á frumbyggjum þess varð síðan þekkt sem Rómanska-Ameríka. Santiago Abascal, leiðtogi hægriöfgaflokksins Vox, lýsti Biden sem „sorglegum“. „Hann réðst á mesta meistarastykki spænsku landvinninganna: kristniboðið,“ sagði Abascal og lýsti nýlendunum sem „keisaradæmi mannréttinda“. Deilur um sérstakan hátíðardag vegna svokallaðra „landafunda“ Evrópumanna í Ameríkunum eru langt því frá nýjar af nálinni. Mörgum kemur það þannig spánskt fyrir sjónir að þjóðir þar sem meirihluti íbúa er af frumbyggjaættum skuli fagna tímamótum sem leiddu til fjöldamorðs á forfeðrum þeirra og eyðileggingu á menningu þeirra. Kólumbus sjálfur, sem var ítalskur, kom fram af sérstökum hrottaskap við þá heimamenn sem urðu á vegi hans í Karíbahafi. Þá var Kólumbus ekki sérlega vel áttaður þar sem hann hélt alla tíð að hann hefði í raun fundið nýja siglingaleið til Asíu sem var þó heilli heimsálfu og heimshafi lengra í vestur.
Spánn Bandaríkin Ítalía Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Sjá meira