Íslenski boltinn

Arnar um að Kári verði á­fram: Já­kvætt fyrir mig, klúbbinn og hann sjálfan

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson er ánægður með halda Kára Árna í herbúðum Víkinga.
Arnar Gunnlaugsson er ánægður með halda Kára Árna í herbúðum Víkinga. vísir/daníel þór

Miðvörðurinn Kári Árnason skrifaði undir nýjan samning við Víking í dag. Svava Kristín Grétarsdóttir ræddi við Kára sem og Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkinga.

Miðvörðurinn Kári Árnason skrifaði undir nýjan samning við Víking í dag. Svava Kristín Grétarsdóttir ræddi við Kára sem og Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkinga. Sá síðarnefndi er einkar ánægður með að Kári verði áfram í herbúðum liðsins og hefur litlar áhyggjur af því að þessi magnaði varnarmaður sé að nálgast fertugt.

Svava Kristín ræddi einnig við Arnar um Sölva Geir Ottesen, annan varnarjaxl, sem Víkingar vonast til að halda í og möguleika þess að Kolbeinn Sigþórsson gengi aftur í raðir Víkinga.

„Gríðarlega mikilvægt fyrir klúbbinn. Mjög ánægður með hvað er enn mikið hungur eftir í honum. Mjög jákvætt fyrir mig, klúbbinn og hann líka, held hann sé helpeppaður fyrir næsta tímabil,“ sagði Arnar í viðtali eftir undirskriftina í dag.

„Hann er ekki meiðslagjarn maður og meiðist mjög sjaldan. Hann lenti (í sumar) í fáránlegum meiðslum. Öxl þarna, missteig sig og einhverja svona vitleysu. Kári er vanalega mjög fit gaur og ég hef engar áhyggjur af framhaldinu. Hann mun fyrst og fremst gefa okkur svo mikið. Hann hefur margt fram að færa sem fótboltamaður sem og að tala við unga leikmenn, kenna þeim. Þeir geta notið þess að vera eitt ár í viðbót, að minnsta kosti, að læra hvernig hann hagar sér innan vallar sem utan,“ svaraði Arnar er hann var spurður hvort Kári gæti alveg spilað áfram verandi orðinn 38 ára gamall.

„Hann fór í aðgerð núna á dögunum, snýst núna um að komast aftur í stand og líða vel í hausnum, það er að fá traust frá sínum lækni að hann geti spilað áfram. Það var aðeins hreinsað til í hnénu á honum og vonandi verður það allt í lagi. Væri klárlega frábært að hafa hann áfram líka,“ sagði þjálfarinn um stöðuna á Sölva Geir.

Að lokum var Arnar spurður hvort Víkingar væru að horfa til Svíþjóðar þar sem Kolbeinn Sigþórsson, uppalinn Víkingur, var að losna undan samning hjá úrvalsdeildarfélaginu AIK og orðrómar hafa verið uppi þess efnis að hann sé á leið heim.

„Það væri geggjað ef okkur tækist að klófesta Kolbein. Hans ósk er örugglega að halda áfram úti en ef hann kemur til Íslands þá fer bara söfnun af stað í Fossvoginum og við reynum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að klófesta Kolla,“ sagði Arnar að endingu.

Klippa: Arnar Gunnlaugs um Kára Árnason, Sölva Geir og Kolbein Sigþórsson

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×