Inter Mílanó er komið upp í þriðja sæti ítölsku A-deildarinnar í fótbolta eftir 2:0-sigur á Genoa á útivelli í kvöld. Romelu Lukaku og Danilo D'Ambrosio gerðu mörk Inter.
Inter er með tíu stig, einu stigi á eftir Sassuolo í öðru sæti og tveimur á eftir grönnunum í AC Milan sem eru í toppsætinu.
Lazio hafði betur gegn Bologna á heimavelli, 2:1. Luis Alberto og Ciro Immobile gerðu mörk Lazio áður en Lorenzo De Silvestri minnkaði muninn fyrir Bologna í uppbótartíma.
Andri Fannar Baldursson byrjaði á varamannabekk Bologna og lék síðustu 20 mínúturnar.