Hefðbundin jólahlaðborð snúin í framkvæmd

Jólahlaðborð - mynd úr safni.
Jólahlaðborð - mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Aðgerðastjórn vegna Covid-19 á Austurlandi hefur fengið fyrirspurnir um jólahlaðborð vinnustaða, hvernig þau samrýmist sóttvarnareglum sem gilda til 3. nóvember.

Hún bendir á að samkvæmt þeim mega ekki fleiri en tuttugu einstaklingar koma saman hverju sinni að þjónustufólki meðtöldu. Þá skuli tryggja 2 metra fjarlægð milli þeirra sem ekki eru í nánum tengslum.

„Hefðbundin jólahlaðborð virðast af þessum sökum snúin í framkvæmd miðað við núverandi stöðu. Við það bætist að varað hefur verið við slíkum hlaðborðum vegna smithættu, nokkuð sem rétt myndi að taka með í reikninginn einnig,“ segir á vef lögreglunnar. Ekkert Covid-19 smit er á Austurlandi en tveir eru í sóttkví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert