Enginn ágreiningur vegna athugunar á hópsmiti

Mynd frá framkvæmdum við Landspítala.
Mynd frá framkvæmdum við Landspítala. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Af fréttum síðasta sólarhrings má draga þá ályktun að ósætti sé milli Landspítala og embættis landlæknis. Nánar tiltekið að ágreiningur sé um þann farveg sem athugun á hópsmiti á Landakoti er í. Það er fjarri sanni og enginn fótur fyrir slíku,“ segir í yfirlýsingu frá Landspítala. 

Kjart­an Hreinn Njáls­son, aðstoðarmaður land­lækn­is, sagði í sam­tali við mbl.is í gær, að það ætti eft­ir að koma í ljós hvort kór­ónu­veiru­smitið sem kom upp á Landa­koti yrði tilkynnt embætt­is land­lækn­is sem al­var­legt at­vik. Ekki væri þó tíma­bært að hugsa um slíkt eins og staðan var þá. 

Már Kristjáns­son, yf­ir­lækn­ir á smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­al­ans og formaður far­sótt­ar­nefnd­ar Land­spít­ala, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera ósátt­ur við að landlæknir liti svo á að smit sem kom upp á Landa­kots­spít­ala sé at­vik sem þurfi hugsanlega að rann­saka.

Vangavelturnar sagðar ótímabærar

Í fyrrnefndri yfirlýsingu kemur fram að Landspítali og embætti landlæknis hafi átt náið samstarf í heimsfaraldrinum sem hafi í einu og öllu einkennst af gagnkvæmri virðingu og sameiginlegum skilningi á því umfangsmikla verkefni sem blasir við vegna COVID-19.

„Landspítali starfar nú á neyðarstigi. Vangaveltur um hugsanlega framvindu á athugun á því hópsmiti sem varð á Landakoti eru ótímabærar og mega ekki tefja það vandasama verkefni að vinna úr þeirri alvarlegu stöðu sem komin er upp. Landspítali skoðar hópsýkinguna á Landakoti með smitrakningu og nýtur í því verkefni fulltingis smitrakningarteymis almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Það er af niðurstöðu þeirrar vinnu sem lærdómur verður dreginn. Upplýsingamiðlun um þann lærdóm verður fumlaus þegar þar að kemur.“

Mannauðnum þurfi að sýna virðingu

53 eru nú inniliggjandi á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og segir í yfirlýsingunni að íslenska heilbrigðiskerfið sé undir gríðarlegu álagi við fordæmalausar aðstæður í miðjum heimsfaraldri.

„Mikilvægt er að mannauðnum þar sé skapaður nauðsynlegur vinnufriður og veitt sú virðing sem hann á skilið. Þolinmæði og þrautseigja eru lykilatriði þegar mörk hins mögulega eru þanin til hins ýtrasta. Við þetta og margt fleira fást Landspítali og Embætti landlæknis jafnóðum allan sólarhringinn, af þolgæði og í einbeittum og samstíga takti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert