Hallinn á vöruskiptum 15,5 milljarðar

Fluttar voru út vörur fyrir 61,2 milljarða króna fob í maí 2021 og inn fyrir 76,8 milljarða króna cif (71,3 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 15,5 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 4,2 milljarða króna í maí 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í maí 2021 var því 11,3 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 158,7 milljarða króna sem er 20,4 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr að því er segir á vef Hagstofu Íslands. 

Verðmæti útflutnings jókst um 8,7% á tólf mánaða tímabili

Verðmæti vöruútflutnings í maí 2021 jókst um 8 milljarða króna, eða um 15%, frá maí 2020, úr 53,2 milljörðum króna í 61,2 milljarða. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 4,3 milljarða eða um 18%, munar þar mestu um aukið verðmæti loðnuhrogna. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 2,1 milljarð króna eða 8,3% samanborið við maí 2020 og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls og útflutning á lækningatækjum.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júní 2020 til maí 2021, var 656,7 milljarðar króna og hækkaði um 52,6 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 8,7% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 47% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaða og var verðmæti þeirra 4% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 44% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 13% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 7,7 milljarða, eða 30,2%, á sama tímabili eða um 5% af heildarútflutningi.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 3,1% á tólf mánaða tímabili

Verðmæti vöruinnflutnings nam 76,8 milljörðum króna í maí 2021 samanborið við 57,4 milljarða í maí 2020. Verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 3,7 milljarða króna eða um 20%, verðmæti matvöru og drykkjarvöru jókst um tæpa 2,8 milljarða frá því í maí í fyrra eða um 50,8%, neysluvörur um aðra 3,6 milljarða eða um 41,1% og flutningstæki um 6,1 milljarð eða um 85,7%. Aðrir liðir tóku minni breytingum.

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 807,2 milljarðar króna og jókst um 23,9 milljarða króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 3,1% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili er mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og neysluvörum en á móti er samdráttur í flutningatækjum og eldsneyti.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK