Aldrei til matur, lyktuðu alltaf illa og urðu fyrir ofbeldi Stefán Árni Pálsson skrifar 27. október 2020 10:31 Eydís og Inga enduðu hjá fósturforeldrum sem í raun bjargaði framtíð þeirra.
Það var aldrei til matur á heimilinu, þær áttu aðeins fötin sem þær stóðu í, lyktuðu alltaf illa, voru lamdar af foreldrum sínum en móðir þeirra tók að lokum eigið líf. Þær sakna föður síns lítið og segja lífið betra án hans en með honum. Þrátt fyrir ömurlegar aðstæður og eiga þær enn eftir vinna í sínum málum komu þær sér í gegnum mennta- og háskóla. Í Fósturbörnum á Stöð 2 í gærkvöldi var rætt við Eydísi Rán sem fæddist árið 1991 og Ingibjörgu Sædísi sem fæddist árið 1992. Til að byrja með bjuggu þær með foreldrum sínum í Samtúni og var þau bæði mjög veik andlega. Til að mynda henti faðir þeirra móður niður stiga í Samtúni og hún varð í kjölfarið öryrki það sem eftir var. „Það verstu sem kom fyrir móður okkar, og það kom mjög margt slæmt fyrir hana, var að hitta pabba,“ segir Inga. „Ég man eftir einum afmælisdegi mínum eitt árið átti að vera einhver tiltektardagur og ég sagði við pabba, en ég á afmæli í dag pabbi. Hann vissi ekkert af því og ég man að það var kjötfars í matinn þennan dag,“ segir Inga og var það öll afmælisveislan. Minningarnar vondu eru endalausar hjá þessum tveimur systrum og þar koma jólin oftar en einu sinni við sögu. „Það var einhver jólamatur eldaður en við sátum samt bara í draslinu og ég var sú eina sem fór í spariföt og ég var eitthvað að reyna þykjast að það væru í raun og veru jól,“ segir Eydís og engir pakkar voru til staðar um jólin. „Það eina sem við áttum í töluverðan tíma voru fötin sem við vorum í og skólataskan,“ segir Inga. Eydís á í dag þriggja ára gamlan son og segir hún að lífsreynsla hennar hafi mótað hana sem foreldri. „Ég er algjörlega með það á hreinu hvernig ég ætla ekki að vera og hvað ég ætla ekki að gera. Eitt af því mikilvægasta í mínu uppeldi er að sonur minn mun aldrei nokkur tímann upplifa þá tilfinningu að foreldrum hans sé sama um hann. Það er það sem ég ætla alltaf að passa upp á og alltaf að vera til staðar og ég ætla segja við hann að ég elska hann og ég ætla knúsa hann alveg nóg.“ Klippa: Aldrei til matur, lyktuðu alltaf illa og urðu fyrir ofbeldi
Fósturbörn Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Lífið Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Andri og Erla selja í Seljunum Lífið Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað Sjá meira