Mjótt á munum í Perú Árni Sæberg skrifar 7. júní 2021 13:42 Keiko Fujimori, forsetaframbjóðandi í Perú. Getty/Manuel Medir Talning atkvæða stendur nú yfir í Perú en forsetakosningar fóru fram í landinu í gær. Keiko Fujimori hefur naumt forskot á andstæðing sinn, Pedro Castillo, þegar 90 prósent atkvæða hafa verið talin.
Kosningarnar sem fóru fram í Perú í gær eru einar þær mikilvægustu í sögu landsins. Stjórnmálakrísa hefur ríkt í landinu undanfarið, til dæmis gegndu þrír embætti forseta á einni viku í nóvember síðastliðnum. Val kjósenda í Perú stendur á milli tveggja gjörólíkra stjórnmálastefna. Keiko Fujimori er leiðtogi Fuerza Popular, helsta íhaldssflokks Perú. Þá er hún einnig dóttir Alberto Fujimori, fyrrverandi forseta landsins. Alberto var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir brot í starfi. Sósíalískur bændasonur Andstæðingur Fujimori, Pedro Castillo, er aftur á móti vinstrisinnaður grunnskólakennari og formaður sósíalistaflokksins Frjálst Perú. Hann hefur lofað að umturna stjórnarskrá landsins, breyta auðlindakerfinu, stofna ráðuneyti vísinda, og mörgu fleiru. „Hvernig má vera að, í svona efnuðu landi, sé svo mikil eymd, svo mikill ójöfnuður, og að einungis þeir stóru hagnist, jafn vel þó þeir vinni ekki,“ segir Castillo í samtali við CNN. Munur milli borga og sveita Keiko Fujimori nýtur mikils stuðnings í borgum Perú en sveitirnar styðja Castillo. Þegar 90 prósent atkvæða hafa verið talin er Fujimori með 0,7 prósenta forskot á Castillo. Forskot hennar minnkar eftir því sem fleiri atkvæði úr sveitum landsins eru talin. Þegar fyrstu tölur voru tilkynntar var forskot hennar 5,8 prósent þegar 42 prósent atkvæða höfðu verið talin. Stuðningsmenn beggja fagna sigri Við birtingu fyrstu talna brutust út mikil fagnaðarlæti meðal stuðningsmanna Fujimori fyrir utan höfuðstöðvar Fuerza Popular í höfuðborginni Lima. „Það sem við þurfum að stefna að er sameining allra Perúbúa. Þess vegna bið ég báða hópa um rólegheit, þolinmæði og frið, bæði þá sem kusu okkur og þá sem kusu okkur ekki,“ er haft eftir Keiko Fujimori. Útgönguspár spáðu Castillo hins vegar sigri og brugðust stuðningsmenn hans við með því að halda út á götur Tacabamba og kalla „Við unnum!“ Við það tilefni óskaði Castillo eftir þolinmæði Perúbúa. „Við treystum á vilja fólksins og vonum að í dag, á þessari lýðræðishátíð, verðum við róleg og þolinmóð. Lengi lifi Perú,“ sagði Castillo við stuðningsmenn sína. Pedro Castillo ávarpar stuðningsmenn sína þegar niðurstöður útgönguspár lágu fyrir.Stringer/EPA Sigurvegarans bíður ærið verkefni Ljóst er að nokkrir dagar gætu liðið þar til endanlegar niðurstöður kosninganna liggja fyrir. Sigurvegari þeirra mun væntanlega eiga fullt í fangi með nýja starfið enda hefur Perú farið verr út úr faraldri COVID-19 en flest önnur lönd. Hvergi í heiminum hafa fleiri látist af völdum COVID-19 en í Perú, sé miðað við höfðatölu. Um 180.000 hafa látist í landinu en íbúar þess eru einungis um 33 milljónir. Auk gríðarlegs mannfalls hefur faraldurinn leikið efnahag landsins grátt. Tæplega þriðjungur íbúa landsins telst nú vera undir fátæktarmörkum.
Perú Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Erlent Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Innlent Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Innlent Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Innlent Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Innlent Stefnir í tveggja turna tal Innlent Fleiri fréttir Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Sjá meira