Nýsjálendingar kjósa sér nýtt þing á morgun Atli Ísleifsson skrifar 16. október 2020 12:43 Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, og Judith Collins, leiðtogi Þjóðarflokksins, í sjónvarpskappræðunum í gær. Getty/Phil Walter
Þingkosningar fara fram á Nýja-Sjálandi á morgun þar sem reiknað er með harðri baráttu milli Verkamannaflokks Jacindu Ardern forsætisráðherra og Íhaldsmannanna í Þjóðarflokknum. Skoðanakannanir sem birst hafa síðustu daga benda þó til að nýsjálenskir kjósendur muni veita hinum vinsæla forsætisráðherra umboð til að stýra landinu í þrjú ár til viðbótar. Í þingkosningunum 2017 varð Þjóðarflokkurinn stærsti flokkurinn á þingi, en Verkamannaflokknum tókst hins vegar að safna saman nægilega mörgum þingmönnum til að mynda nýja samsteypustjórn Verkamannaflokksins, Græningja og popúlistaflokksins Nýja-Sjáland fyrst, undir forystu Ardern. Stjórnarflokkarnir þrír eru nú með alls 63 þingmenn af 120. Jafnvel þó að búist sé við að Verkamannaflokkurinn komi til með að fá fleiri atkvæði en síðast er ólíklegt að flokkurinn nái hreinum meirihluta. Er talið líklegast að ný stjórn Verkamannaflokksins verði mynduð með stuðningi Græningja eftir kosningar. Fari svo að Verkamannaflokkurinn og Græningjar nái ekki saman meirihluta kann svo að fara að Þjóðarflokkurinn og hægriflokkurinn ACT myndi saman stjórn. Sé eitthvað að marka skoðanakannanir þykir þó ólíklegt að slíkt raungerist. Mælast Verkamannaflokkurinn og Græningjar saman með 68 þingmenn, en Þjóðarflokkurinn og ACT með 52. Viðbrögð við faraldri í kastljósi Ekki þarf að koma á óvart þá hafa viðbrögð nýsjálenskra stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum verið áberandi í kosningabaráttunni. Ríkisstjórn Ardern lokaði landinu 26. mars vegna faraldursins og hafa smit og dauðsföll af völdum veirunnar verið hlutfallslega fá í landinu, borið saman við flest önnur lönd. Um mánaðarskeið fengu Ný-Sjálendingar einungis að fara út til að versla lyf og matvæli og hreyfa sig utandyra í klukkustund að hámarki. Mesti samdrátturinn frá 1987 Lokun landsins hefur þó að sjálfsögðu haft áhrif á nýsjálenskan efnahag og hefur samdrátturinn verið sá mesti í landinu síðan 1987. Hafa leiðtogar Þjóðarflokksins nýtt sér þá staðreynd í gagnrýni sinni á stjórnarhætti Ardern og segja þeir viðbrögðin hafa verið alltof hörð. Ardern skorti raunsæja og skýra áætlun í efnahagsmálum. Alls hafa innan við tvö þúsund manns greinst með kórónuveiruna á Nýja-Sjálandi frá upphafi faraldursins. Alls eru nú fjörutíu í einangrun og eru um fjörutíu dauðsföll rakin til Covid-19.
Nýja-Sjáland Tengdar fréttir Aflétta takmörkunum í stærstu borg Nýja-Sjálands Íbúar Auckland, stærstu borgar Nýja-Sjálands, þurfa ekki lengur að huga að fjarlægðarreglum á börum og veitingastöðum þegar slakað verður á sóttvarnaraðgerðum þar í vikunni. 5. október 2020 10:24 Nýsjálendingum brátt heimilt að heimsækja Ástralíu Stjórnvöld í Ástralíu hafa ákveðið að innan tíðar verði Nýsjálendingum heimilt að heimsækja Ástralíu en löndin tvö hafa svo gott sem lokað landamærum sínum í kórónuveirufaraldrinum. 2. október 2020 08:19 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Vopnahlé í sjónmáli? Erlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Fleiri fréttir Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Sjá meira
Aflétta takmörkunum í stærstu borg Nýja-Sjálands Íbúar Auckland, stærstu borgar Nýja-Sjálands, þurfa ekki lengur að huga að fjarlægðarreglum á börum og veitingastöðum þegar slakað verður á sóttvarnaraðgerðum þar í vikunni. 5. október 2020 10:24
Nýsjálendingum brátt heimilt að heimsækja Ástralíu Stjórnvöld í Ástralíu hafa ákveðið að innan tíðar verði Nýsjálendingum heimilt að heimsækja Ástralíu en löndin tvö hafa svo gott sem lokað landamærum sínum í kórónuveirufaraldrinum. 2. október 2020 08:19