Fótbolti

Haaland yngsti leikmaðurinn til að skora 50 mörk

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Erling Haaland hefur ekki átt í erfiðleikum með að skora mörk fyrir Dortmund.
Erling Haaland hefur ekki átt í erfiðleikum með að skora mörk fyrir Dortmund. Getty/Mareen Meyer

Norska ungstirnið Erling Braut Haaland varð í gær yngsti leikmaðurinn í sögu þýsku úrvalsdeildarinnar til að skora 50 mörk í deildinni.

Haaland var 21 árs og 129 daga gamall þegar hann kom inn á sem varamaður fyrir Borussia Dortmund í 3-1 sigri liðsins í gær.

Haaland hefur verið að glíma við meiðsli að undarnförnu en það kom ekki í veg fyrir það að Norðmaðurinn skoraði þriðja og seinasta mark Dortmund.

Þar með varð hann yngsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar til að skora 50 mörk í deildinni.

Ekki nóg með það að Haaland er yngsti leimaðurinn til að skora 540 mörk, heldur hefur enginn gert það í færri leikjum en Norðmaðurinn. Haaland hefur einungis spilað 50 leiki í þýsku úrvalsdeildinni og skorað í þeim þessi 50 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×