Litlu Marsþyrlunni tókst ætlunarverkið Kjartan Kjartansson skrifar 19. apríl 2021 11:15 Skuggi þyrilvængjunnar Ingenuity þegar hún hóf sig til lofts á Mars að morgni mánudagsins 19. apríl 2021. NASA/JPL Fyrsta tilraunaflug þyrilvængjunnar Ingenuity á reikistjörnunni Mars gekk að óskum í morgun. Leiðangursstjórn bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA bárust fyrstu gögnin sem staðfestu að þyrlan hefði flogið og fyrstu myndirnar af tilrauninni.
Ingenuity hóf sig á loft á rauðu reikistjörnunni klukkan 7:30 að íslenskum tíma í morgun og var þannig fyrsta manngerða farið til þess að fljúga undir eigin afli á öðrum hnetti. Vegna fjarlægðarinnar á milli Mars og jarðarinnar fékk NASA ekki staðfestingu á að tilraunin hefði virkað fyrr en um klukkan ellefu að íslenskum tíma. Fögnuður braust út hjá Ingenuity-teyminu þegar gögn úr hæðarmæli sýndu að litla þyrlan hefði svifið í þriggja metra hæð í um fjörutíu sekúndur. Ekki minnkaði gleðin þegar mynd barst neðan úr þyrlunni sem sýndi skugga hennar á rykugu yfirborði reikistjörnunnar og síðan önnur úr könnunarjeppanum Perseverance sem stóð álengdar og fylgdist með. "Ingenuity has performed its first flight the first flight of a powered aircraft on another planet!"The data reveals: Our #MarsHelicopter has had a successful first flight: pic.twitter.com/h5a6aGGgHG— NASA (@NASA) April 19, 2021 Þyrilvængjunni er aðeins ætlað að kanna aðstæður til flugs á Mars en engin vísindatæki eru um borð í henni. Töluvert erfiðara er að fljúga á Mars en á jörðinni þrátt fyrir að þyngdarkrafturinn á Mars sé aðeins þriðjungur af þeim á jörðinni. Lofthjúpur Mars er næfurþunnur, aðeins um 1% af þykkt þess jarðneska. Því þurfa þyrilblöð Ingenuity að snúast 2.500 sinnum á mínútu til þess að ná flugi, um fimmfalt hraðar en hún þyrfti á jörðinni. You wouldn’t believe what I just saw. More images and video to come...#MarsHelicopterhttps://t.co/PLapgbHeZU pic.twitter.com/mbiOGx4tJZ— NASA's Perseverance Mars Rover (@NASAPersevere) April 19, 2021 Ætlunin er að gera fleiri tilraunir með Ingenuity á Mars, allt að fimm flugferðir þar sem þyrilvængjan hættir sér lengra. Þegar tilraununum með Ingenuity er lokið heldur Perseverance, sem lenti á Mars í febrúar, áfram vísindaleiðangri sínum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Mars Geimurinn Tækni Vísindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira