Ánægðir með Elvar: „Hann kemur mér svo á óvart, þessi drengur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. janúar 2022 13:10 Elvar Ásgeirsson fagnar einu fjögurra marka sinna gegn Króatíu. getty/Sanjin Strukic Þeir Ásgeir Örn Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson voru ánægðir með frammistöðu Elvars Ásgeirssonar í leiknum gegn Króatíu í gær.
Þegar staðan var 15-20, Króötum í vil, hrökk Elvar í gang og átti stóran þátt í því að Íslendingar skoruðu sjö mörk gegn einu og náðu forystunni, 22-21. Króatía skoraði svo síðustu tvö mörk leiksins og vann nauman sigur, 22-23. Ásgeir Örn og Róbert mærðu Elvar fyrir frammistöðu hans í EM-hlaðvarpi Seinni bylgjunnar. „Við verðum að hrósa Elvari fyrir síðasta korterið. Hann var virkilega öflugur og hóf endurkomuna. Hann fór allt í einu að keyra, tók eitt hraðaupphlaupsmark og skoraði svo með gólfskoti. Það kom kraftur með honum. Ég held að hann hafi líka drifið Orra [Frey Þorkelsson] með sér,“ sagði Ásgeir Örn. „Það kom mikill kraftur vinstra megin á vellinum sem við þurftum á að halda. Þetta var frábær tímasetning og hann fær stóran plús fyrir það.“ Elvar sat uppi í stúku í öllum þremur leikjunum í riðlakeppninni en eftir að lykilmenn fóru að smitast af kórónuveirunni, einn af öðrum, var Mosfellingnum hent í djúpu laugina. Fyrir EM hafði hann ekki spilað fyrir íslenska landsliðið en það er ekki að sjá á frammistöðu hans á mótinu. „Þetta er þriðji landsleikurinn hans og hann er búinn að byrja þá alla. Þetta er bara einsdæmi. Hann átti líka stórkostlega línusendingu á Elliða í byrjun leiks. Hann kemur mér svo á óvart, þessi drengur. Hann er með gegnumbrot, sendingar og getur stokkið upp. Hann er með þetta allt saman,“ sagði Róbert. Elvar, sem leikur með Nancy í frönsku úrvalsdeildinni, skoraði fjögur mörk í leiknum í gær og gaf fjórar stoðsendingar. Hlusta má á EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar í spilaranum hér fyrir ofan.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Körfubolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti Fleiri fréttir „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti