Barn á fyrsta ári með Covid-19 á Landspítala Eiður Þór Árnason skrifar 12. janúar 2022 11:29 Um 0,5% þeirra sem greinast með Covid-19 leggjast inn á spítala. Hlutfallið er lægra ef bara er miðað við á ómíkron eða 0,2 til 0,3%. Vísir/Vilhelm Eitt barn á fyrsta ári liggur nú inni á Landspítala með Covid-19 og um 60 eru í eftirliti á Barnaspítala vegna sjúkdómsins. Daglega koma um tvö til fimm börn þangað til skoðunar.
Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis. Tíu börn yngri en sextán ára hafa þurft á innlögn að halda hérlendis af um 9.300 sem hafa greinst, eða 0,1%. Tvö börn hafa þurft á gjörgæsluinnlögn að halda. Að auki hafa hundruð barna verið í nánu eftirliti á Barnaspítala en ekki þurft innlögn. Þórólfur sagði að til samanburðar hafi eitt sautján ára ungmenni verið lagt inn á spítala vegna aukaverkunar bóluefnis gegn Covid-19. Þá hafi tilkynningar borist um sex alvarlegar aukaverkanir af um 22 þúsund bólusetningum eða 0,03%. „Það er því ljóst að hér á landi eru alvarlegar aukaverkanir hjá börnum eftir Covid-19 að minnsta kosti þrisvar sinnum meiri en eftir bólusetningu. Þetta er í samræmi við reynslu og uppgjör erlendis, bæði í Bandaríkjunum og Danmörku.“ Hann bætti við að ný gögn frá Bandaríkjunum bendi til að innlögnum barna vegna ómíkrón sé þar að fjölga. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.Vísir/Vilhelm Stöðug þróun og innlögnum að fjölga Alls greindust 1.135 einstaklingar með kórónuveiruna innanlands í gær og sextíu á landamærum. 45 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim fjölgað um sex milli daga. Fram kom í máli Þórólfs að faraldurinn hafi verið í línulegum vexti undanfarna daga með í kringum 1.100 tilfelli á dag. Allt að 300 greinist á landamærum og hafi aldrei verið fleiri. Í gær greindust 293 börn á aldrinum tólf ára og yngri og 63 börn á aldrinum tólf til sextán ára. Vaxandi fjöldi hefur þurft að leggjast inn á spítala samhliða aukningu í samfélagslegum smitum á síðustu vikum. Hefur fjölda sjúklinga á sjúkrahúsi aukist um 70% að undanförnu en staðið í stað á gjörgæslu. Að sögn Þórólfs eru um 90% nú að greinast með ómíkron. Delta afbrigðið er þó enn til staðar og greinast í kringum 100 á dag. Hlutfall þeirra sem þurfa að leggjast inn er í kringum 0,5% af öllum greindum. Það er þó heldur lægra ef bara er miðað við á ómíkron eða 0,2 til 0,3%. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Bein útsending: Upplýsingafundur vegna Covid-19 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hefur boðað til upplýsingafundar í dag vegna faraldurs kórónuveirunnar. Fundurinn verður haldinn klukkan ellefu. 12. janúar 2022 10:04 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Innlent Fleiri fréttir Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Sjá meira
Bein útsending: Upplýsingafundur vegna Covid-19 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hefur boðað til upplýsingafundar í dag vegna faraldurs kórónuveirunnar. Fundurinn verður haldinn klukkan ellefu. 12. janúar 2022 10:04